Flokkur: blogg18.09.2007 20:48Dragnótaveiðar i utanverðum Eyjafirðiþað er oft mikil kvika i utanverðum firðinum i norðanátt og er þessi mynd af dragnótabátnum EIÐ ÓF 13 glögt dæmi um mátt sjávarins þar sem að hann myndar djúpa öldudali þess má ennfremur geta að aflinn eftir túrinn var um 3 tonn mest ýsa Skrifað af Þorgeir 10.09.2007 22:34FRÁ ÖNGLI TIL MAGANemendur i 6 bekkjum grunnskólum akureyrar stunda sjóinn þessa dagana og i morgun var komið að krökkum i Siðuskóla að fara með eikarbátnum HÚNA 2 en þetta er samstarfsverkefni milli hollvina félags húna ,Háskólans á Akureyri, og skóladeildar akureyrarbæjar . fleiri myndir i myndaalbúmi Skrifað af Þorgeir 20.08.2007 16:07Tásubað i bliðunniÞEIR VORU FLOTTIR STRÁKARNIR SEM AÐ LJÓSMYNDARI HITTI I MIÐBÆ AKUREYRAR Á DÖGUNUM OG VORU SNÖGGIR AÐ PÓSA OG FANNST EKKERT TILTÖKU MÁL AÐ STÖKKVA ÚTI GOSBRUNNINN Skrifað af Þorgeir 19.08.2007 23:41NJÖRÐUR EA 151Hvað geta menn sagt mér um þennan bát þarna er hann með hrefnubyssunni og greinilega til i slaginn mig minnir að ég hafi siðast séð hann i kópavogshöfn getur það passað hjá mér Skrifað af Þorgeir 19.08.2007 21:03KIEL NC 105 Mokfiskar við GrænlandFiskaði kvótann á tíu dögum við Grænland.
Skip moka nú upp vænum þorski við austur Grænland. Togari frá þýsku útgerðarfélagi í eigu Samherja kemur til Hafnarfjarðar í fyrramálið með metafla, 700 tonn af frystum flökum.
Fram kemur í fréttum á ruv.is að íslendingar eigi engan kvóta við austur Grænland en sjómenn segja að þar hafi verið mikil og góð þorskveiði undanfarin 2 ár. Skip frá Evrópusambandinu hafa nú í fyrsta sinn í langan tíma fengið kvóta við Grænland og hafa komist í mokveiði. Þýski togarinn Kiel, sem er óbeint í eigu Samherja, hefur undanfarið veitt þorsk við austur Grænland. Skipstjórinn Brynjólfur Oddsson er eini Íslendingurinn um borð en áhöfnin er þýsk. Á 10 dögum veiddist þar allur þorskkvóti skipsins sem gerði um 700 tonn af frystum flökum. Brynjólfur skipstjóri segir að þetta sé orðinn besti túr sem um getur á skipinu, fyrir heildaraflann fáist á bilinu 400 til 450 miljónir. Í raun hafi þeir ekki haft undan að frysta aflann, í besta halinu hafi þeir fengið 30 tonn á 15 mínútum. Góð þorskveiði við austur Grænland vekur athygli þegar dregið er úr þorskveiði hér við land, segir Kristján Vilhelmsson útgerðarstjóri Samherja. Skrifað af Þorgeir 19.08.2007 18:59NJÖRÐUR EA 151JÆJA HÉRNA KEMUR NYND AF NIRÐI EA 151 HVAÐ VARÐ UM HANN Skrifað af Þorgeir 19.08.2007 14:07Valbjörn is 13hérna kemur eitt likanið úr byggðasafninu á isafirði i viðbót hvað geta menn sagt mér um það Skrifað af Þorgeir 19.08.2007 12:16Gamall trébátur I Eyjafirðijæja spekingar góðir núna reynir á snilli ykkar þessi bátur liggur i fjörunni austamegin i eyjafirði og væri nú gaman að fá upplýsingar frá ykkur um hann svo er grein um gamla árabáta og viðtal við Bjarna Jónsson listmálara i morgunblaðinu i dag og þar fjallar hann meðal annas um þjóðararfinn gömlu tréskipin Skrifað af Þorgeir 18.08.2007 12:32SURPRISE HU 19SURPRISE HU 19 Á SIGLINGU Á EYJAFIRÐI I GÆRKVELDI ÞETTA ER SVOLITIÐ SÉRSTAKT NAFN Á SKIPI OG HEFUR ÝMSUM ATHUGASEMDUM VERIÐ SKOTIÐ Á SKIPSTJÓRNARMENN VEGNA ÞESSA Skrifað af Þorgeir 15.08.2007 16:41PÁLL PÁLSSON IS 402ÞESSI BÁTUR VAR LENGI GERÐUR ÚT FRÁ ISAFIRÐI OG HVAÐ SVO Skrifað af Þorgeir 14.08.2007 21:06DRÖFN IS 5SÆLIR SPEKINGAR HVAÐ SEGIÐ ÞIÐ MÉR UM ÞENNAN BÁT SEM AÐ ER Á BYGGÐASAFNINU Á ISAFIRÐI Skrifað af Þorgeir 13.08.2007 23:14Sigurbjörg ÓF 1 i slipp á AkureyriSigurbjörg Óf 1 eitt skipa Ramma h/f var i slipp á Akureyri i dag og var verið að zinka og gera klárt fyrir botnmálun en sem kunnugt er fékk skipið i skrúfuna þegar það var á veiðum i barentshafi i siðastatúr og tók f/T venus hf 519 hann i tog útfyrir rússnesku lögsöguna þar sem að skorið var úr skrúfunni og siðan var siglt fyrir eigin vélarafli heim til Islands þar var svo skipið sett i slipp vegna leka i stefnisröri og mun viðgerð ljúka á morgun Skrifað af Þorgeir 13.08.2007 19:57Bruggsmiðjan á ÁrskógssandiBruggsmiðjan á Árskógssandi, sem framleiðir bjórinn Kalda, annar engan veginn eftirspurn þrátt fyrir að framleiðslan hafi verið aukin um 80% í maí sl. Agnes Anna Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri segir að með þessari aukningu gætu þau annað eftirspurninni en svo hafi ekki verið. ?Við erum að framleiða ríflega 25 þúsund lítra á mánuði núna, en það er hvergi nærri nóg, og verksmiðjan er rekin á fullum afköstum. Við gætum komið fyrir fleiri bruggtönkum án þess að stækka húsnæðið, og við munum skoða það í vetur ef svo fer fram sem horfir.?Starfsmenn voru í upphafi fjórir en eru nú orðnir sjö, m.a. er búið að ráða annan bruggmeistara frá Tékklandi og er hann fluttur á Árskógssand með fjölskyldu sína. Bruggsmiðjan framleiðir bæði ljósan og dökkan Kalda og segir Agnes að báðar gerðirnar njóti mikilla vinsælda. Ekki er nóg með að fólk gleypi við bjórnum. Mikið er um að bæði einstaklingar og hópar komi í Bruggsmiðjuna til að skoða verksmiðjuna, kynna sér framleiðsluna og síðast en ekki síst að fá að smakka. Þá má loks geta þess að innan tíðar verður heimasíða Bruggsmiðjunnar opnuð og slóðin er www.bruggsmidjan.is eða www.kaldi.is. heimild dagur.net mynd þorgeir Skrifað af Þorgeir 12.08.2007 19:46GUÐBJÖRG 14Guðbjörg is hvað voru þær margar og hver veit útgerðarsögu þeirra Skrifað af Þorgeir 11.08.2007 19:44Fiskidagurinn 2007 DalvikÞað var griðarlega góð stemming á fiskidögum á dalvik þetta árið og hefur hátiðinni vaxið fiskur um hrygg með hverju ári og i ár er talið að um 30000 manns hafi verið á svæðinu eða komið við og eru mósthaldarar i skýunum með þetta allt saman fleiri myndir i MYNDAALBÚMI efst á siðunni Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 701 Gestir í dag: 53 Flettingar í gær: 1587 Gestir í gær: 63 Samtals flettingar: 915126 Samtals gestir: 46151 Tölur uppfærðar: 16.10.2024 09:05:18 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is