Færslur: 2008 Desember18.12.2008 14:23Búddi KE 9Í dag rann í sjó í Njarðvík rúmlega 45 ára gamall bátur með nýju nafni Búddi KE 9, síðast hét hann Litlaberg og var frá Þorlákshöfn. Bátur þessi má segja að sé að koma heim, því í upphafi bar hann nöfnin Árni Þorkelsson KE 46 og Andvari KE 93 en síðan þá hefur hann ýmist verið gerður út frá Þorlákshöfn eða Vestmannaeyjum. 13. Búddi KE 9 © mynd Emil Páll Skrifað af Emil Páli 18.12.2008 00:34Síldarlöndun í Vestmannaeyjum fyrr á árumSíldarlöndun í Vestmannaeyjum fyrr á árum © mynd úr safni Tryggva Sig. Skrifað af Emil Páli 18.12.2008 00:27Dala - Rafn VE 508 fyrir og eftir breytingu1379. Dala - Rafn VE 508 fyrir breytingar 1379. Dala - Rafn VE 508 eftir breytingar © myndir Tryggvi Sig. Skrifað af Emil Páli 18.12.2008 00:20Engey RE 11 og Kristbjörg VE 70Hér sjáum við bát sem bar fjölmörg nöfn, með tvö þeirra. 44. Engey RE 11 44. Kristbjörg VE 70 © myndir Tryggvi Sig. Skrifað af Emil Páli 17.12.2008 19:00Hilmi ST verður fargaðEins og fram kemur á síðu Ingólfs Þorleifssonar hefur verið tekin ákvörðun um að farga gamla Hilmi ST 1 sem staðið hefur til að varðveita á Hólmavík. Hilmir sem hafði smíðanr. 1 hjá Dráttarbraut Keflavíkur hf. og er frá árinu 1942 hefur aðeins borið tvær skráningar, þ.e. núverandi nafn og nr. frá 1946, en fram að því var hann Hilmir GK 498. Hann var tekinn af skrá 1995 og settur á land til varðveislu sem safngripur en í ágúst sl. krafðist sveitarstjóri Strandabyggða að hann yrði fjarlægður af Hólmanum Hólmavík. 565. Hilmir ST 1 © mynd Guðjón H. Arngrímsson Skrifað af Emil Páli 16.12.2008 00:09Tveir í lenginguHér sjáum við tvo Eyjabáta í lengingu, en ljóst er að mörg ár hafa liðið milli framkvæmdanna, því í öðru tilfellinu er um eikarbát sem var í útgerð fyrir tugum ára og hins vegar stálbát sem enn er í útgerð, þó mikið breyttur sé. 452. Erlingur II VE 325 1135. Þórunn Sveinsdóttir VE 401 © myndir úr safni Tryggva Sig. Skrifað af Emil Páli 15.12.2008 20:45Björgvin EA 311 úr Barentshafi©myndir Þorgeir Baldursson 2008 Björgvin EA 311 eitt af skipum Samherja H/F kom til hafnar á Akureyri um miðjan dag i gær en skipið hefur verið á veiðum i Barentshafi aflinn var um 9000 kassar sem að gera um 640 tonn uppúr sjó og aflaverðmætið var um 140 milljónir meirihluti aflians var þorskur veiðiferðin tók 35 daga og þar af fóru 15 dagar i stim gengi islensku krónunnar hefur haft veruleg áhrif á aflaverðmætiði svona túrum og lækkaði þar að leiðandi talsvert á heimstiminu og mun skipið nú eftir áramót halda til veiða á heimamiðum þar sem að fiskað verður fyrir frystihúsið á Dalvik Skrifað af Þorgeir 15.12.2008 18:05Baldur í jólabúningi311. Baldur KE 97 kominn í jólabúninginn © mynd Emil Páll Skrifað af Emil Páli 15.12.2008 17:51Gulli á VoninniÞeir eru margir sjóaranir sem kannast við Gunnlaug Karlsson fyrrum útgerðarmann og skipstjóra í Keflavík, eða Gulla á Voninni eins og hann var oftast kallaður. Gulli skreytir hús sitt með mynd af síðasta bátnum er bar Vonarnafnið hjá honum og er myndin og ljósaskreytingin uppi allan ársins hring á íbúðarhúsi hans. Til að auka jólastemminguna hefur hann nú bætt við jólagreni umhverfis myndina. Hér sjáum við myndir sem sína listaverkið að deginum til og aðra eftir að það fór að rökkva. Svona lítur listaverkið út að deginum til. Báturinn er 221. Vonin KE 2 Hér sjáum við sömu mynd eftir að rökkva tekur © myndir Emil Páll Skrifað af Emil Páli 15.12.2008 14:53Súlan EA 3001060. Súlan EA 300 við bryggju í Keflavík í dag © mynd Emil Páll Skrifað af Emil Páli |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 526 Gestir í dag: 38 Flettingar í gær: 1455 Gestir í gær: 74 Samtals flettingar: 991947 Samtals gestir: 48545 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 10:27:28 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is