Færslur: 2009 September

08.09.2009 00:23

Hamravík KE 75


                                     82. Hamravík KE 75 © mynd Emil Páll

Smíðanr. 69 hjá Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk í Flekkefjord í Noregi 1963. Sú stöð keypti skipið aftur í júní 1979, en þó lá skipið við bryggju í Njarðvík, þar til í ágúst 1980. Í mars 1980, var lagt fyrir Alþingi frumvarp um að leyfa innflutning á skipinu aftur og átti eigandi þá að verða Njörður hf. í Sandgerði, en frumvarpið dagaði uppi á Alþingi og því dró Goðinn skipið út í ágúst 1980. Eftir að skipið komst í norska eigu var því breytt í Brunnbát.
Nöfn: Hamravík KE 75 og í Noregi hét það fyrst Hamravík og síðan Fröytrans, með heimahöfn í Vardö.

08.09.2009 00:10

Ingiber Ólafsson II GK 135


            965. Ingiber Ólafsson II GK 135 © mynd Emil Páll 1964

Smíðanr. 27 hjá Ulstein Mekaniska Verksted í Ulsteinsvik í Noregi 1964. Fyrsta íslenska skipið með bakka - hvalbak. Yfirbyggður hjá Þorgeir og Ellert hf. á Akranesi 1977, Lengdur 1978. Skráður sem vinnubátur frá 1995. Úrelding 1995. Seldur til Færeyja í jan 1996, Lagt við bryggju Í Reykjavík og síðan fluttur til Njarðvíkur, enda fór báturinn aldrei til Færeyja. Tekinn í hús í Njarðvík 2002 til endurbyggingar, en hætt var við það. Að lokum dreginn frá Njarðvík 8. maí 2004 til Danmerkur í pottinn.
Nöfn: Ingiber Ólafsson II GK 135, Ársæll KE 77, Ársæll KE 17, Jöfur KE 17, Helga III RE 67, Halldóra HF 61, Snarfari ÓF 25, Snarfari HF 66, Snarfari, Neves, Reynir HF 265 og aftur Snarfari HF 66.

08.09.2009 00:01

Jóhann Guðnason KE 77


                   1333. Jóhann Guðnason KE 77 © mynd Emil Páll 1977 eða '78

Smíðanr. 51 hjá Slippstöðinni hf. Akureyri 1973. Lengdur 1981. Yfirbyggður 1985. Var fyrsta íslenska fiskiskipið sem hafði um borð línubeitningavél (1975) Vélin var frá norska fyrirtækinu Mustad stöperi & Mek verksted A/S.
Nöfn: Fjölnir ÍS 177, Bergþór KE 5, Jóhann Guðnason KE 77, Sigurður Þorleifsson GK 256, Eyfell EA 540, Kópanes SH 702 og á Írlandi Kópanes S 702.
Seldur úr landi til Cork í Írlandi 7. ágúst1992. Fór í pottinn í Hull á Englandi 2006.

07.09.2009 21:19

Erling KE 45


                                     1361. Erling KE 45 © mynd Emil Páll

Smíðanr. 24 hjá A/S Eidsvik Skipsbyggeri í Uskedalen í Noregi 1969. Yfirbyggður og breytt úr togskipi í nótaskip hjá Vélmsmiðjunni Herði hf. Njarðvík frá júlí 1977 til 1978. Lengdur 1986 hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur. Stykkið sem sett var í bátinn til að lengja hann var smíðað upp í sveit í Danmörku og flutt hingað til lands.
Nöfn: Stjernöysund, Pétur Jóhannsson SH 207, Seley SU 10 og Erling KE 45.  Strandaði á Borgarboða við Hornafjörð 11. des. 1990 og sökk.

07.09.2009 20:09

Goði AK 50


                  1631. Goði AK 50 í höfn á Akranesi © mynd Emil Páll í ágúst 2009

Nýsmíði nr. 466 hjá Bátalóni hf. í Hafnarfirði og var afhentur 10. júní 1982.
Nöfn: Fálkinn NS 325, Sigurbára VE 249, Sveinbjörg SH 317, Sveinbjörg ÁR 317, Vörðufell GK 205, Vörðufell SF 200, Gæfa SF 2, Mundi Sæm SF 1 og Goði AK 50.

07.09.2009 18:06

Hvaða fyrirbæri var þetta og hvar var það staðsett?


   Hvaða fyrirbæri var þetta og hvar var það staðsett? © mynd úr safni Svafars Gestssonar

07.09.2009 16:58

Á Hafnarröstinni í Ghana

Svafar Gestsson frá Húsavík,  núverandi vélstjóri á Jónu Eðvalds SF, hefur sent okkur til birtingar mikið magn af myndum sem hann hefur tekið á skipum og af skipum víða um heim. Myndir þær sem hann sendi okkur nú eru t.a.m. teknar hérlendis, í Ghana, Færeyjum, Portúgal-Algarve, Póllandi, Marokko, Las Palmas og Skotlandi. Myndirnar sem teknar voru í Ghana, voru teknar er hann var vélstjóri á Húnarröstinni sem flaggað var í skamman tíma þangað niður eftir og kom síðan heim aftur. Sýna myndirnar lífið um borð, veiðarnar, önnur skip, fiskiflóruna og margt annað skemmtilegt.Verða þær birtar í smá skömmtun og dugar þetta örugglega í marga mánuði. Sjálfur hefur hann þetta að segja um aðstæður þarna: Í höfninni í Thema í Ghana varð maður að fara með myndavél eins og þjófur að nóttu þar sem herinn er með aðstöðu í sömu höfn og við vorum í og allar myndatökur bannaðar og var því fylgt strangt eftir. Það eru reyndar bara tvær hafnir í Ghana í Thema þar sem við vorum og svo Takoradi. Til að komast inn á hafnarsvæðið þurfti maður að hafa sérstakann hafnarpassa og fara í gegnum 4 hlið með tilheyrandi veseni. Fyrirtæki það sem ég vann hjá í Ghana heitir: Salvation Merchant Fishing company.

Sendum við Svafari bestu þakkir fyrir.


                                          249. Hafnarröst í Las Palmas


                                       Addy bókarinn hjá fyrirtækinu


                               Anaman með rottu


                                           Áhöfn ásamt Bóbó skipstjóra


                                  Baracuta © myndir Svafar Gestsson

07.09.2009 00:20

Úlla SH 269


                         1637. Úlla SH 269, í Ólafsvík © mynd Emil Páll í ágúst 2009

07.09.2009 00:17

Egill SH 195


                       1246. Egill SH 195, í Ólafsvík © mynd Emil Páll í ágúst 2009

07.09.2009 00:12

Rifsari SH 70


´                        1856. Rifsari SH 70, á Rifi © mynd Emil Páll í ágúst 2009

07.09.2009 00:03

Matthías SH 21


                  2463. Matthías SH 21, á Rifi  © mynd Emil Páll í ágúst 2009

07.09.2009 00:01

Magnús SH 205


                          1343. Magnús SH 205´, á Rifi © mynd Emil Páll í ágúst 2009

06.09.2009 19:57

Harpa RE 342




                                        1033. Harpa RE 342 © myndir Emil Páll

Smíðanr. 324 hjá Werft N.V. Scheepsv. Deest í Deest í Hollandi 1967. Yfirbyggður og lengdur Danmörku 1977. Breytt í krabbaveiðiskip í Hafnarfirði 2002. Seld til Karabíska hafsins eftir að hafa skemmst mikið af eldi í ársbyrjun 1992 og þaðan seld til Grænlands.
Nöfn: Harpa RE 342, Ammassat GR-18-82, Aqisseq GR 11-90 og Bjal Fighter GR 5-259
1971-1973 var skipið skráð sem Rauðanes ÞH en notaði ekki það nafn.

06.09.2009 18:24

Þá er það síðasta byggðargetraunin í bili a.m.k. og spurt er hvar þetta sé?


                    Hvaða staður er þetta? © mynd úr safni Svafars Gestssonar

06.09.2009 10:40

Númi HF 62 ex KÓ 24


                    1487. Númi HF 62 í Reykjavíkurhöfn © mynd Emil Páll í ágúst 2009

Smíðanr. 15 hjá Skipavík hf., Stykkishólmi 1977 eftir teikningu Egils Þorfinnssonar, Keflavík. Hljóp af stokkum 15. júní 1977 og afhentur 1. júlí.
Nöfn: Ásbjörg  ST 9, Ásbjörg RE 79,  Alli Júl ÞH 5, Valdimar SH 106, Númi KÓ 24 og Númi HF 62.

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 1467
Gestir í dag: 23
Flettingar í gær: 2311
Gestir í gær: 37
Samtals flettingar: 571005
Samtals gestir: 21608
Tölur uppfærðar: 29.3.2024 12:40:57
www.mbl.is