Flokkur: blogg

01.08.2007 14:01

Verða veiðieftirlitsmenn óþarfir i framtiðinni

Stjórnvöld og sjómenn í Bresku Kólumbíu í Kanada hafa undanfarið gert tilraunir með eftirlitsmyndavélar um borð í fiskiskipum. Tilgangurinn er að fylgjast með hvort farið sé að reglum um veiðar og hvort um brottkast á afla sé að ræða.

Myndavélarnar er staðsettar þannig að þær ,,sjái? þegar aflinn kemur um borð hvort sem um er að ræða troll eða línu. Vélarnar, sem yfirleitt eru tvær, eru tengdar við vindur skipanna og fara í gang um leið og þær. Auk mynda af veiðunum skrásetur tækið veiðitíma og staðsetningu skips þegar veiða áttu sér stað með GPS móttökubúnaði. Í Fishing News International segir að sjómenn í Bresku Kólumbíu séu sáttir með þessa nýju tækni og talsmenn Archipelago Marine Research sem stjórnar verkefninu segja mun ódýrara og öruggara að setja upp myndavélar en að hafa eftirlitsmenn um borð í skipunum.HEIMILD SKIP.IS

31.07.2007 16:26

Dragnóta veiðar i Önundarfirði

Stjórn Útvegsmannafélags Vestfjarða mótmælir harðlega hugmyndum um lokun á snurvoðaveiðum í Önundarfirði. Stjórn Íbúasamtaka Önundarfjarðar hefur farið þess á leit við bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar að könnuð verði staða snurvoðaveiða í Önundarfirði. Ástæðan er sú að á Flateyri og Suðureyri er hafinn atvinnurekstur sem byggist á að nýta firðina til veiða með sjóstöng. Greint er frá þessu á bb.is.

Útvegsmannafélaginu var sent erindið til umsagnar. Í umsögninni segir að snurvoðaveiðar hafi verið stundaðar um árabil Önundarfirði og eru fiskimiðin þar mikilvæg þeim bátum sem þær stunda. Félagið mælist ekki til að sjóstangaveiði verði bönnuð þrátt fyrir að fjörðurinn sé hefðbundin veiðislóð snurvoðabáta og segir að sjóstangamenn eigi sinn rétt eins og aðrir. Enn fremur segir: ?Afar óeðlilegt hlýtur að teljast að stofnendur nýs atvinnurekstrar, eins og hér á við um þá sem hyggjast selja aðgang að veiðum með sjóstöng, skuli gera kröfu til þess að hefðbundin atvinnustarfsemi á sama svæði víki burt. Þar að auki skal bent á að ekki hefur komið til árekstra milli veiðimanna á þessu svæði og engin ástæða er til að hafa áhyggjur vegna snurvoðaveiða á svæðinu, enda snurvoðin afar vistvænt veiðarfæri.?

Í umsögn félagsins er bent á að rekstur hagkvæms sjávarútvegs á Íslandsmiðum byggist á því að unnt sé að nýta mismunandi tegundir og veiðislóðir á mismunandi árstímum. Ef aðliggjandi veiðisvæði yrðu aðeins nýtt af heimamönnum myndi grafa undan rekstrargrundvelli um allt land. Bendir félagið þar á að fiskiskip frá Vestfjörðum nýti fiskimið, bæði djúpt og grunnt, um allt land.

Bæjarráð ákvað að framsenda umsögn Útvegsmannafélagsins til sjávarútvegsráðuneytisins og Íbúasamtaka Önundarfjarðar.

31.07.2007 02:14

á bryggunni i denn

það var oft gaman á bryggunni i denn þegar allt var fullt af rækju bátum og menn voru ýmist að landa úr bátunum fara á sjó eða með trollin uppi á bryggju og oftar en ekki með allt i henglum

30.07.2007 15:55

Uppsetning á STK kerfi

Það var mikið um að vera á flateyri i siðustu viku þegar starfsmenn Pólsins á isafirði voru að setja upp svokallað STK kerfi sem að er sjálvirkt tilkynningaskyldu kerfi og er nú búið að setja það i alla Bobbybáta hvildarkletts á Flateyri

29.07.2007 14:49

GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR IS 267

Það er gaman að koma á byggðasafnið á Isafirði og mart að sjá það sem að vakti sérstaka áhuga minn voru bátalikön af vestfirskum bátum sem að eru lista vel gerð og læt hér fyrstu myndina birtast og  er hún af Guðrúnu Jónsdóttur is 267 og væntanlega munu fleiri fylgja i kjölfarið

27.07.2007 01:28

HÓPSIGLING Á POLLINUM

Myndir úr hópsiglingu á eyjafirðinum þar sem að eikarbáturinn  HÚNI lék stórt hlutverk fleiri myndir i myndaalbúmi

27.07.2007 00:43

þerney re 101

F/T ÞERNEY RE 101 kom til hafnar á Isafirði i gær með slasaðan sjómann sem að var talið að væri öklabrotinn hann var færður undir læknishendur ,og var myndin tekin þegar skipið kom til hafnar i morgnunsárið

22.07.2007 22:35

ARON ÞH 105

 Aron þh 105 er næsti bátur i myndasyrpunni um gamla trébáta hver er saga hans,og hvað voru margir smiðaðir fyrir islendinga á þessum árum frá 1950- 1965 og er eitthvað vitað um afdrif þeirra sem að eru ekki á skipaskrá

22.07.2007 21:12

Sæfaxi Ve 30

Hérna kemur myndin af Sæfaxa VE 30 og er þessi mynd sennilegasta sú siðasta sem að ég tók af honum undir þessum merkjum en vonandi varpar þetta einhverju ljósi á þessar vangaveltur þeirra sem til þekkja

19.07.2007 23:42

Norðmenn úthluta karfakvóta i sildarsmugunni

Sjö norskir togarar hafa fengið leyfi til að veiða karfa í Síldarsmugunni í haust. Norðmenn vonast til að geta látið að sér kveða í þessum veiðum í ár að því er fram kemur á www.fiskebat.noVeiðar á karfa á alþjóðlega hafsvæðinu, sem Norðmenn kalla Norska hafið, hafa verið stundaðar í nokkur ár. Íslensk skip hafa tekið þátt í þessum veiðum að einhverju marki. Nýlegar rannsóknir benda til þess að erfðafræðilegur skyldleiki sé á milli karfans í Síldarsmugunni og úthafskarfans í efri lögum sjávar. Jafnframt er skyldleiki á milli þessa karfa og karfa í Barentshafi. Norðmenn hafa mótmælt karfaveiðum á þessu svæði og Alþjóðahafrannsóknaráðið hefur lagt til að engar veiðar verði stundaðar þarna í ár. Á aukafundi NEAFC í sumar var hins vegar áveðið að leyfa veiðar á 15.500 tonnum af karfa í Síldarsmugunni. Veiðarnar mega hefjast 1. september og standa til 15. nóvember. Um olympiskar veiðar verður að ræða.Þau sjö norsku skip, sem fá leyfi til veiðanna, eru skip sem annaðhvort hafa veiðireynslu á Irmingerhafi eða á alþjóðlegu hafsvæði í fyrra.

 

 

19.07.2007 23:23

Eyrún EX (FROSTI ÞH )

þetta er siðasta myndin sem að ég tók af Eyrúnu og var hún tekin þegar norðmennirnir voru búnir að kaupa hana og voru að snurfunsa hana fyrir siglinguna til Noregs

19.07.2007 12:30

Niels Jónsson Ea 106

HÉRNA KEMUR EINN TRÉBÁTURINN I VIÐBÓT HVAÐ VORU MARGIR SMIÐAÐIR AF ÞESSAR STÆRÐ OG HVAR VORU ÞEIR  SMIÐAÐIR VÆRI GAMAN EF AÐ EINHVER VISSI HVER VÆRI YFIRSMIÐUR OG SVO VÆRI GOTT AÐ FYLGDI MEÐ UPPLÝSINGAR UM ÞÁ SEM AÐ ENN ERU I DRIFT  

19.07.2007 08:54

haförn ár 115

Hvað er vitað um þennan bát myndin tekin i þorlákshöfn á siðustu öld

19.07.2007 02:48

Gamlir bátar i Ólafsvikurhöfn 1989

þessir bátar vou i höfn i ólafsvik á vetrarvertið 1989 hvaða bátar eru þetta og hvar voru þeir smiðaðir

18.07.2007 14:43

Bæjarstjórn Akureyrar ályktar um kvótamál

Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti samhljóða á fundi sínum í gær ályktun vegna skerðingar á aflaheimildum.

?Bæjarstjórn Akureyrar lýsir yfir þungum áhyggjum af væntanlegum niðurskurði í aflaheimildum á þorski og þeim afleiðingum sem sá samdráttur mun hafa á atvinnulíf í Eyjafirði og á Norðurlandi öllu. Bæjarstjórn hvetur því ríkisstjórn Íslands til að ráðast nú þegar í margháttaðar aðgerðir í Eyjafirði sem munu bæta innviði og hafa jákvæð áhrif á efnahagslíf landshlutans.

Greinargerð
Óumdeilt er að ákvörðun sjávarútvegsráðherra mun hafa afgerandi áhrif á útgerðir, fiskvinnslu og afleidda þjónustu í Eyjafirði og þar með launþega og sveitarfélög.

Ljóst er að niðurskurðurinn mun hafa mikil áhrif í Eyjafirði því gert er ráð fyrir að heildarafli þorsks muni dragast saman um 8000 tonn á svæðinu. Þegar litið er á tölur fyrir Norðurland eystra kemur fram að sá landshluti er með hæstu aflahlutdeildina í þorski eða um 22,5% og um 74% af afla skipa svæðisins er landað í heimahöfn. Á Norðurlandi eystra er líka mikil landvinnsla á þorski en um 35 þúsund tonn voru unnin hér á síðasta ári.

Bæjarstjórn Akureyrar óskar því tafarlaust eftir viðræðum við ríkisstjórnina um atvinnumál Eyjafjarðarsvæðisins."Heimild mbl.is

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 1527
Gestir í dag: 51
Flettingar í gær: 1455
Gestir í gær: 74
Samtals flettingar: 992948
Samtals gestir: 48558
Tölur uppfærðar: 21.11.2024 10:48:29
www.mbl.is