Flokkur: blogg23.05.2007 22:01NÝR BÁTUR TIL FLATEYRARNýr bátur hefur verið keyptur til Flateyrar .Garðar IS 22 sem að er Vikingur 800 og hét áður, Kristbjörg EA 225 útgerðarmaður er Sigurður Garðarsson ,og verður báturinn gerður út á linu .Hann er væntanlegur til heimahafnar á Flateyri i kvöld eða i fyrramálið Skrifað af Þorgeir 22.05.2007 23:27Birtingur NK 119 ex (guðmundur ólafur óf 91 )
Skrifað af Þorgeir 22.05.2007 21:26Beitir Nk 123 i pottinn i DanmörkuEitt aflahæðsta skip landsins BEITIR NK 123 hefur verið seldur úr landi til niðurrifs og fór til Danmerkur þann 2 mai og þá eru eftir Sigurður ve 15 Vikingur ak 100 Suðurey ve 12 og Lundey ns 14 er ekki rétt munað að þeir séu allir smiðaðir eftir svipaðri teikningu Skrifað af Þorgeir 20.05.2007 18:17Samherji hf kaupir útgerð sjólaskipa erlendis
Sjólaskip hf. og Samherji hf. hafa gert samkomulag um að Samherji hf. kaupi erlenda starfsemi Sjólaskipa hf. og tengdra félaga. Þessi félög hafa gert út 6 verksmiðjuskip og tvö þjónustuskip í lögsögu Máritaníu og Marokkó. Sjólaskip hf. eru með höfuðstöðvar á Íslandi, en með bækistöðvar á Kanaríeyjum
Sjólaskip hf. hafa gert út fiskiskip við Máritaníu og Marokkó síðastliðin 10 ár. Starfsemin hefur vaxið stöðugt og reksturinn hefur gengið vel. Við reksturinn starfa ríflega eitt þúsund starfsmenn af ýmsum þjóðernum, þ.á.m. um 80 Íslendingar. Fiskiskipin eru áþekk að stærð og búnaði og Engey RE sem Samherji hf. keypti nýlega. Sjólaskip hf. hófu útgerðarrekstur í landhelgi Marokkó árið 1997. Reksturinn fór rólega af stað en hefur vaxið hratt ár frá ári. "Framsýnir, samheldnir og öflugir starfsmenn bæði á landi og sjó eiga stóran þátt í hversu vel hefur tekist að byggja upp þessa öflugu útgerð. Rekstur okkar hefur verið afar farsæll í þessu framandi og krefjandi rekstrarumhverfi", sagði Haraldur Jónsson framkvæmdastjóri Sjólaskipa hf. Eftir þessi viðskipti eiga Sjólaskip hf. eitt skip, Delta, sem stundar veiðar í landhelgi Marokkó og landar ferskum fiski til vinnslu þar í landi. Á heimasíðu Sjólaskipa hf. www.sjoli.is má finna frekari upplýsingar um starfsemina.Heimild .www.samherji.is Skrifað af Þorgeir 20.05.2007 13:39Chase 550 prufukeyrsla á pollinumHann var ekkert smá flottur nýi CHAMPION báturinn hans Sævars sem að er CASE 550 þegar að hann tók hringin fyrir ljósmyndarann i bátnum er 320 Hp VOLVO PENTA og dual pro skrúfa ganghraði á svona bát er uþb 70 mph svo að skurðurinn er enginn fyrirstaða og nú er bara að fjölga bátunum Skrifað af Þorgeir 10.05.2007 19:00Góð veiði við BjarnareyArctic WarriorSigurbjörn Sigurðsson ( Sibbi) skipstjóri á Arctic Warrior hringdi í mig í dag. Þeir eru í Honningvaag að taka olíu á 45 degi veiðiferðarinnar. Tíðarfar er búið að vera í verri kantinum 25m/s voru í gær þegar þeir hífðu síðasta hol fyrir olíutöku. Búið er að loka heilmiklu svæði við Bjarnarey sem gerir þeim erfitt fyrir. Komnir með 150 milljón króna aflaverðmæti og sagðist Sibbi ætla ná 150t af flökum í viðbót áður en hann færi í land. Arctic Worrior er í eigu dótturfélags Samherja og er gert út frá Bretlandeyjum. Willard Helgason er 1. stýrimaður þar um borð. (Mynd: Þorgeir Baldursson fengin á heimasíðu Samherja) fréttin er fengin af www.123.is/arnir og kann ég honum bestu þakkir fyrir afnotin Skrifað af Þorgeir 10.05.2007 17:25KARFAVEIÐIKarfaveiði i úthafinu hefur farið rólega rólega af stað og eru nokkur islensk skip þegar farin til veiða og talsvert af erlendum skipum eru dansandi á landhelgislinunni og er jafnvel talið að þau séu milli 40 og 50 og hefur veiðin verið i kringum 1 tonn á togtimann þessi karfi sem að guðmundur guðmundsson skipverji á Kaldbak EA heldu á var 8 KG og 77 CM á lengd Skrifað af Þorgeir 02.05.2007 23:16FRÉTTARITARI MBL Á GÓÐRI STUNDSvona gera bara toppmenn sagði Hafþór þegar myndin var tekin af honum i skemmunni hjá Alla Geira Skrifað af Þorgeir 25.04.2007 08:38Héðinsfjarðargöng
Skrifað af Þorgeir 24.04.2007 19:06Oddeyrin Ea 210Oddeyrin EA kom til hafnar í Hafnarfirði með mettúr. Veiðiferðin hófst þegar farið var út frá Hafnarfirði þann 24. mars og fiskaðist mjög vel í upphafi og var búið að fylla lestar skipsins þann 10. apríl þegar farið var í land til að landa hluta aflans svo hægt væri að klára veiðiferðina. Í dag 24. apríl kom Oddeyrin svo í land með fullfermi öðru sinni á einum mánuði. Aflaverðmæti eftir veiðiferð sem stóð yfir í einn mánuð frá þeim tíma sem farið var frá höfn og komið til hafnar aftur er um 100 milljónir. Er þetta önnur veiðiferð skipsins síðan skipið hóf veiðar fyrir Samherja á Akureyri. Skipstjóri í veiðiferðinni var Guðmundur Freyr Guðmundsson. © www.123.is/jobbigummi Skrifað af Þorgeir 23.04.2007 23:50GÖMLU TRÉBÁTARNIR Á UNDANHALDIÞað er synd að horfa á eftir öllum þessum gömlu góðu Eikarbátum á áramóta brennur og annas konar niðurrif og væri nú gott að gera eins og sum hvalaskoðunnar fyrirtækin gera á húsavik að vera eingöngu með eikarbáta i sýnum hvalaskoðunnarferðum þvi að eins og svo margir vita hafa þessi gömlu skip sál Skrifað af Þorgeir 22.04.2007 22:36Nýtt Gullberg til EyjaNÝTT GULLBERG VE 292 KOM TIL VESMANNEYJA FYRIR STUTTU OG ER ÞAÐ HIÐ GLÆSILEGASTA SKIP MYNDINA TÓK ÓMAR GARÐARSSON HJÁ WWW.SUDURLAND.IS OG KANN ÉG HONUM BESTU ÞAKKIR FYRIR AFNOTIN Skrifað af Þorgeir 21.04.2007 15:37Kaldbakur EA 1
Skrifað af Þorgeir 21.04.2007 12:18Humarveiðar hafnarFyrsti humarfarmurinn er kominn í vinnslu hjá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum en Gandí landaði í morgun um 40 körum af humri eða rétt um tveimur tonnum. Humarinn er frekar smár enda er ekki enn búið að opna helstu veiðisvæði humars. Nú vinna rúmlega þrjátíu manns við humarvinnsluna í Vinnslustöðinni en samkvæmt heimildum www.sudurland er verið að skoða það að vinna á vöktum í sumar. Ólafur Skúli Guðjónsson skipsverji á Aron ÞH 105 Gengur hér frá humarafla i lestinni . Myndin er tekinn árið 1990, Aron ÞH heitir núna Stormur SH 333 Skrifað af Þorgeir 16.04.2007 17:37björgunnaræfing með kallinumþegar mótorinn bilaði á bátnum þá er eins gott að menn hafi árarnar klárar og viti i hvaða átt skal róa fleyinu samanber bendingar skipstjórans Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 526 Gestir í dag: 38 Flettingar í gær: 1455 Gestir í gær: 74 Samtals flettingar: 991947 Samtals gestir: 48545 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 10:27:28 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is