21.02.2024 15:20Ernir seldur til Ómans eftir tveggja ára leguErnir seldur til Ómans eftir tveggja ára leguUppsjávarskipið Ernir hefur legið í Kópavogshöfn í rúmlega tvö ár en virðist nú vera selt til Ómans. mbl.is/Gunnlaugur Uppsjávarskipið Ernir sem hefur legið við bryggju í Kópavogshöfn undanfarin rúm tvö ár virðist loks hafa fengið nýja eigendur samkvæmt upplýsingum 200 mílna. Málað hefur verið yfir nafn skipsins og þar stendur nú Al Nasr og það merkt PSQ en það er skammstöfun Sultan Qaboos-hafnar sem er stærsta höfnin í Múskat, höfuðborg Ómans. Að því sem 200 mílur komast næst hefur skipið verið í eigu félags Jakobs Valgeirs Flosasonar og til sölu um nokkurt skeið. Ernir (nú Al Nasr) hefur verið frá árinu 2020 skráð í Belís þar til nú. Skipið á sér þó langa útgerðarsögu meðal annars á Íslandi, eins og 200 mílur sögðu frá árið 2022. Frétt af mbl.isGamall Vestmanneyingur vekur athygli í KópavogiÍ umfjölluninni frá febrúar 2022 segir: „Ernir var smíðaður 1987 í Bergen í Noregi fyrir norska útgerð. Þá var skipið 58,9 metra að lengd, 12,6 metra að breidd og 1.900 brúttótonn og bar um langt skeið nafnið Hardhaus. Árið 2004 festi Þorbjörn Fiskanes hf. (síðar Þorbjörn hf.) í Grindavík kaup á skipinu í gegnum dótturfélag sitt Ólaf hf. og fékk skipið þá nafnið Grindvíkingur GK. Ekki gerðu Grindvíkingar skipið út lengi þar sem aflaheimildir reyndust ekki vera nægar til þess að standa undir rekstri skipsins. Rétt einum og hálfum mánuði eftir að Þorbjörn Fiskanes hf. keypti skipið var það selt Ísfélagi Vestmannaeyja hf. með tilheyrandi aflaheimildum í íslenskri sumargotssíld, norsk-íslenskri síld og loðnu. Fékk þá skipið nafnið Guðmundur VE.“ Ernir heitir nú Al Nasr og er skipið skráð í Óman. Ljósmynd/?Stefán O. Stefánsson Til Vestmannaeyja og Grænlands„Eftir aðeins tveggja ára þjónustu fyrir Ísfélagið var Guðmundur VE í mars 2006 sendur til skipasmíðastöðvar í Póllandi þar sem átti að framkvæma umtalsverðar breytingar. Þar kviknaði eldur í frystilest skipsins og urðu töluverðar skemmdir á vinnsludekkinu. Eftir 10 mánaða veru í Póllandi snéri Guðmundur aftur til Íslands en þá hafði skipið verið lengt um 12,5 metra og með nýjan búnað um borð. Október 2013 var Guðmundur seldur til Grænlands þar sem Royal Greenland gerði skipið út en undir nafninu Tasiilaq. Tasiilaq átti eftir að koma oft til Íslands á þeim tæpu sjö árum sem skipið sigldi undir grænlenskum fána. Þann 15. júní 2020 seldi hins vegar Royal Greenland skipið og fékk það nafnið Ernir og varð skráð í Belís. Royal Greenland festi kaup á Christian í Grótinum frá Færeyjum sem leysti Tasiilaq (Erni) af hólmi en færeyska skipið fékk við það nafn fyrirrennara síns, Tasiilaq.“ Ernir hefur nú, sem fyrr segir, fengið nafnið Al Nasr og mun vera gert út frá Óman. Skrifað af Þorgeir 20.02.2024 23:591977 Július Geirmundsson IS 270
Skrifað af Þorgeir 16.02.2024 22:53Arctic Voyager á Fáskrúðsfirði
Skrifað af Þorgeir 16.02.2023 22:50Kvannoy N- 400- B landar loðnu
Skrifað af Þorgeir 16.02.2023 08:08Langar og leiðinlegar brælur
Skrifað af Þorgeir 06.02.2023 23:05Július Geirmundsson is 270.
Skrifað af Þorgeir 06.02.2023 07:50Norsk Loðnuskip á Fáskrúðsfirði
Skrifað af Þorgeir 17.01.2023 07:44Gamla Hoffell að koma til Fáskrúðfjarðar
Skrifað af Þorgeir 16.01.2023 08:11Helga Maria Re 1
Skrifað af Þorgeir 16.01.2023 00:52Gamli Höfðinginn á loðnumiðunum
Skrifað af Þorgeir 14.01.2023 00:41Bjartur Nk 121 brælutúrSkrapp i veiðferð með Steinþóri Hálfdánarssyni og hans mönnum á Bjarti Nk 121 þann 8 mars 2014 og hérna koma nokkrar myndir úr veiðiferðinni
Skrifað af Þorgeir 17.12.2022 23:04Hoffell Su 80 á Eyjafirði i dagHið nýja skip Loðnuvinnslunnar Hoffell Su 80 kom til Akureyrar i dag og i vikunni verður skipið tekið upp i Flotkvinna hjá slippnum á Akureyri þar sem að sett verður nýtt botnstykki fyrir hlerapar og kanski eitthvað fleira
Skrifað af Þorgeir 16.12.2022 21:41Skötuveisla Húnafólks i BrekkuskólaÞað var góð stemming i sal Brekkuskóla i kvöld þegar skipverjar á Húna 11 EA 740 héldu sina árlegu skötuveislu alls voru um 80 manns og að sögn matargesta var þetta magnað og voru gestirnir hæðst ánægðir með þessa stórveislu boðið var uppá skötu, saltfisk, tindabyggju, kartöflur, rófur, og hamsafitu og i eftirrétt kaffi og piparkökur hérna koma nokkar myndir frá kvöldinu
Skrifað af Þorgeir 15.12.2022 23:15Mesta aflaverðmæti íslensks togara frá upphafi
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
| Sigþór Kjartansson Skipstjóri á Sólbergi ÓF 1 Mynd þorgeir Baldursson |
Sigþór Kjartansson skipstjóri segir árangurinn fyrst og fremst áhöfninni að þakka. „Það þarf að vinna þetta og það eru ófá handtökin,“
en allur fiskur er fullunninn um borð og það sem ekki fer í frystingu fer í lýsi og mjöl. Um borð í skipinu, sem smíðað var fyrir Ramma hf. árið 2017,
er alla jafna 34 manna áhöfn sem nú fer í verðskuldað jólafrí.
Eldra efni
Um mig
Nafn:
Þorgeir BaldurssonFarsími:
8620479Tölvupóstfang:
thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang:
Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning:
HörgárbyggðUm:
Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi© 2026 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is