15.12.2021 21:47

Rúnar L Gunnarsson hættir á Gullver Ns 12

Rúnar L. Gunnarsson lýkur skipstjóraferlinum

15/12/2021 | Fréttir

Rúnar L. Gunnarsson í brúnni á Gullver NS.
Ljósmynd. Þorgeir Baldursson

Ísfisktogarinn Gullver NS kom til löndunar á Seyðisfirði á mánudagsmorgun. Afli skipsins var 96 tonn, mest þorskur en einnig ýsa, karfi og ufsi. Togarinn hafði verið að veiðum í Berufjarðarál og á Gerpisflaki. Þessi veiðiferð skipsins markaði tímamót því hún var hin síðasta hjá Rúnari L. Gunnarssyni í skipstjórastóli. Rúnar var að kveðja Gullver eftir 37 ára farsæla samveru. Í tilefni þessa ræddi heimasíðan stuttlega við Rúnar.

-Varst þú ungur þegar þú hófst sjómannsferilinn?

Ég fór í mína fyrstu veiðiferð tólf ára gamall. Það var á Vingþóri sem lagði stund á handfæraveiðar við Langanes. Veiðiferðin tók 3-4 daga. Þegar ég var 13 ára réðst ég á bátinn Ólafíu sem var gerð út af manni frænku minnar frá Reykjavík. Ólafía var fyrst á handfærum og síðan á trolli. Þetta var sumarið 1970. Sumarið eftir réðst ég á annan bát sem sami maður átti og hann hét Bjarni Ólafsson. Þá var gert út á rækju. Síðan fór ég á Ásþór RE sem var á línu og netum. Á honum var ég í eitt ár.

-Tókstu snemma ákvörðun um að gera sjómennskuna að lífsstarfi?

Nei, blessaður vertu. Það var engin slík ákvörðun tekin ef ég man rétt. Það gerðist bara. Ég fór í Stýrimannaskólann 18 ára gamall og var þar eins og krakki innan um þá gömlu jaxla sem voru með mér í skólanum. Á milli bekkja í skólanum var ég síðan á sjó á Seyðisfirði.

-Hefurðu ávallt starfað á skipum frá Seyðisfirði eftir að þú laukst stýrimannanáminu?

Já, það hef ég gert. Ég var fyrst á Gullver og síðan á Gullbergi. Gullberg hf. festi síðan kaup á nýjum Gullver árið 1983 og ég hef verið á honum allar götur síðan. Ég hef verið á skipinu í 37 ár en eitt árið tók ég frí frá sjómennsku og starfaði sem hafnarvörður hjá Seyðisfjarðarhöfn. Á núverandi Gullver var ég stýrimaður til að byrja með en hóf að leysa annað slagið af sem skipstjóri árið 1994. Síðan, þegar Axel Ágústsson hætti sem skipstjóri fyrir um áratug, kom að því að ég hóf að gegna skipstjórastarfi á móti Jónasi Jónssyni sem var reynslumikill og farsæll. Þegar Jónas hætti sem skipstjóri fyrir fjórum árum hóf Þórhallur Jónsson að gegna skipstjórastarfi á móti mér. Við höfum átt afar gott samstarf.

-Nú festi Síldarvinnslan kaup á Gullbergi hf. árið 2014 og um áramótin 2016-2017 var Gullberg sameinað Síldarvinnslunni. Urðuð þið sjómennirnir mikið varir við þessar breytingar?

Gullver NS. Nú er samveru Rúnars L. Gunnarssonar og Gullvers lokið eftir 37 ár. Ljósmynd. Þorgeir Baldursson

Ég viðurkenni það að fyrst leist mér ekkert á þessar breytingar en það átti eftir að breytast. Eftir að Síldarvinnslan kom að þessum rekstri gátum við veitt miklu meira en áður – það var miklu meiri kvóti sem við höfðum úr að spila. Það leið ekki langur tími þar til við áttuðum okkur á því að það var margt afar jákvætt sem gerðist með kaupum Síldarvinnslunnar á Gullbergi. Síðan fengum við líka um borð fína menn frá Norðfirði – reynslumikla og áhugasama. Mér skilst að Norðfirðingurinn Steinþór Hálfdanarson muni taka við skipstjórastöðunni núna þegar ég er hættur og það verður enginn svikinn af því.

Hvað ert þú ánægðastur með á þínum skipstjóraferli?

Ég er ánægðastur með að hafa verið heppinn. Það hafa engin alvarleg slys orðið um borð á þeim tíma sem ég hef sinnt skipstjórn og það hafa heldur engin önnur alvarleg óhöpp orðið. Nú er öllum öryggismálum miklu betur sinnt en áður og það er svo sannarlega framfaraskref sem skiptir máli.

Hvað á að gera núna þegar skipstjóraferlinum er lokið?

Ég ætla að byrja á því að fara með konunni minni, Jóhönnu Gísladóttur, til Svíþjóðar og njóta samvista við barnabörnin. Annars ætla ég bara að njóta lífsins til hins ítrasta. Þegar ég var að taka lokaholið í síðasta túrnum hringdi minn gamli skipstjóri, Jónas Jónsson, í mig og sagði að ég þyrfti engu að kvíða eftir starfslokin og ég myndi hafa nóg fyrir stafni. Hann sagðist tala af reynslu. Annars hringdu þeir strax úr fiskimjölsverksmiðjunni hér á Seyðisfirði og buðu mér vinnu. Ég get alveg hugsað mér að fara einn og einn túr sem stýrimaður ef þörf verður á en nú er komið að því að horfa til framtíðar áhyggjulaus og glaður.

15.12.2021 00:27

Oddeyrin EA 210 á siglingu á Eyjafirði

                                     2978 Oddeyrin EA210 við Hauganes  mynd þorgeir Baldursson 14 des 2021

                                          2978 Oddeyrin EA210 Drónamynd þorgeir Baldursson 14 des  2021

14.12.2021 23:55

Varðskipið Freyja á Eyjafirði i dag

                                   3011 Freyja á siglingu á Eyjafirði i dag mynd þorgeir Baldursson 14 des 2021

I dag koma Varðskipið Freyja til Akureyrar og var erindið að sækja uppsjávarveiðiskipið Janus EX 1293 Birtingur NK 124

og Börkur Nk 122 og draga það i slipp til Hafnarfjarðar þar sem aðskipt verður um Aðalvél og  skipið verður gert sjóklárt 

til siglingar til Mexico en þangað var það selt fyrir þónokkru siðan 

                                                    1293 Birtingur Nk 124 mynd þorgeir Baldursson 

                                                                     Janus Mynd þorgeir Baldursson 

                               3011 Freyja Leggur af stað með Janus frá Akureyri Mynd Ágúst Eiriksson 14 des 2021

                         3011 Freyja og 1293 Janus koma til Hafnarfjarðar i vikunni mynd Jón Páll Ásgeirsson 

14.12.2021 23:50

Mannabreytingar hjá Slippnum

des 14, 2021

Páll Kristjánsson ráðinn framkvæmdastjóri Slippsins


Páll Kristjánsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Slippsins á Akureyri og tekur við starfinu um áramótin. Páll hefur stýrt framleiðslusviði félagsins. Hann er viðskiptafræðingur með framhaldsmenntun í fjármálum og alþjóðaviðskiptum frá Háskólanum í Árósum í Danmörku.
Páll þekkir vel til sjávarútvegstengdra verkefna, en hann starfaði áður hjá Marel, 3X Technology og sjávarútvegsfyrirtækinu GPG Seafood á Húsavík, þar sem hann var framkvæmdastjóri.

Eiríkur S. Jóhannsson sem verið hefur framkvæmdastjóri Slippsins í sex og hálft ár lætur af störfum á sama tíma. Hann mun verða stjórn og stjórnendum til ráðgjafar á komandi mánuðum.

Starfsfólki Slippsins var greint frá þessu í dag, ásamt öðrum skipulagsbreytingum í rekstri félagsins.

 

Margt í pípunum

Starfsmenn Slippsins eru um 150 en má segja að þeir séu mun fleiri, því við leitum í ríku mæli til samstarfsfyrirtækja, þannig getum við þjónað viðskiptavinum okkar enn betur og boðið upp á heildarlausnir. Slippurinn hefur alltaf lagt ríka áherslu á góða og faglega þjónustu, sem er líklega
helsta ástæðan fyrir því að viðskiptavinirnir koma  aftur til okkar. Það er margt í pípunum og
fullt tilefni til bjartsýni á þessum tímapunkti.
Slippurinn er öflugt fyrirtæki með frábært starfsfólk og ég er því fullur tilhlökkunar,“ segir Páll Kristjánsson.

 

 

 

Bjartsýnn á framtíðina                                                                             

Ég lít stoltur um öxl. Tími minn hjá Slippnum hefur verið mér gefandi. Við höfum í sameiningu treyst undirstöður fyrirtækisins til muna og lagt mikið af mörkum til nýsköpunar, sem ég trúi að skapi Slippnum fjölmörg sóknartækifæri.  Ég er bjartsýnn fyrir hönd Slippsins á komandi tímum, enda hefur starfsfólk félagsins sýnt og sannað að það er í fremstu röð á sínu sviðið í þjónustu við alþjóðlegan sjávarútveg sem og aðra viðskiptavini, „ segir Eiríkur S. Jóhannsson. Aðspurður um tímasetningu þessara breytinga, segir hann „Ég er í stjórnum margra félaga sem krefjast mun meiri athygli en ég hef náð að veita að undanförnu.  Slippurinn er í góðum höndum hjá Páli og hans fólki, því var þessi ákvörðun einföld og að ég tel, félaginu til framdráttar,“ segir Eiríkur S. Jóhannsson.

 

 

Aðrar skipulagsbreytingar kynntar

Magnús Blöndal Gunnarsson, sem verið hefur markaðsstjóri undanfarin ár, tekur  við stjórn framleiðslusviðs félagsins af Páli Kristjánssyni. Magnús er sjávarútvegs- og fiskeldisfræðingur frá Háskólanum á Akureyri og Háskólanum að Hólum.

Samhliða þessum breytingum mun Kristján H. Kristjánsson mannauðsstjóri taka yfir kynningarmál Slippsins. Kristján er menntaður byggingafræðingur, með áherslu á stjórnun, frá VIA University í Horsens í Danmörku.

Nýverið tók Sveinbjörn Pálsson við stjórn Skipaþjónustusviðs Slippsins. Sveinbjörn er iðnaðarverkfræðingur frá Chalmers Tekniska Högskola í Gautaborg og hefur víðtæka starfreynslu til sjós og lands. Hann kom til Slippsins frá upplýsingatæknifyrirtækinu Þekkingu.

Í sumar tók Elsa Björg Pétursdóttir við starfi fjármálastjóra félagsins. Elsa er menntaður viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Akureyri og hefur m.a. starfað um árabil hjá Íslandsbanka, seinast sem svæðisstjóri einstaklingsviðskipta á Norður- og Austurlandi. 

Fjölbreytni starfa er mjög mikil hjá Slippnum og starfsmannavelta almennt lítil. Safnast hefur upp áralöng þekking og reynsla sem einkennir vinnubrögð hjá starfsmönnum félagsins.

Fréttatilkynning frá Slippnum Akureyri 14.12.2021

13.12.2021 23:19

Oddeyrin EA 210 i Jólabúning

                            2978 Oddeyrin EA 210 kominn með Jólaseriu mynd þorgeir Baldursson 2021

12.12.2021 03:34

Árni FRIÐRIKSSON Re 200

                                      2350 Árni FRIÐRIKSSON Re 200 mynd þorgeir Baldursson 

11.12.2021 18:31

Beitir Nk með loðnufarm til heimahafnar

                  2900 Beitir Nk 123 að sigla til hafnar mynd  Guðlaugur B Birgisson 

10.12.2021 19:47

Vilhelm Þorsteinsson EA 11

                     2982 Vilhelm þorsteinsson EA 11 mynd Þorgeir Baldursson 2021

10.12.2021 07:23

Frosti ÞH i Brælu

                                    2433 Frosti ÞH 229 mynd þorgeir Baldursson 

10.12.2021 03:13

Londnuveidar I flottroll

                                                         Londnuvidar I flottroll mynd thorgeir baldursson 

08.12.2021 23:23

Bjarni Ólafsson Ak 70

                                   2288 Bjarni Ólafsson Ak 70 mynd þorgeir Baldursson 

08.12.2021 10:00

Breki Ve 61

                                            2861 Breki Ve 61 mynd þorgeir Baldursson 2020

08.12.2021 04:46

Kap Ve 4

                                          1742 Kap Ve 4 við bryggju á Akureyri  mynd Þorgeir Baldursson 

07.12.2021 21:12

Ljósafell Su á útleið í dag

 
                  1277 Ljósafell Su 70 á útleið í dag mynd Eddi Gretars 

05.12.2021 04:11

Guðný Su45 á Djúpavogi

                 7479 Guðný Su45 mynd þorgeir Baldursson 2021

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 2747
Gestir í dag: 172
Flettingar í gær: 1762
Gestir í gær: 168
Samtals flettingar: 596944
Samtals gestir: 24909
Tölur uppfærðar: 19.4.2024 21:11:46
www.mbl.is