Börkur NK í höfn í Skagen. Ljósm. Grétar Örn Sigfinnsson
Að undanförnu hefur verið unnið að viðhaldi og endurbótum á uppsjávarskipum Síldarvinnslunnar fyrir komandi makrílvertíð.
Barði NK kom til heimahafnar í Neskaupstað í lok maí en þá hafði skipið verið í slipp á Akureyri frá lokum loðnuvertíðar. Meðal annars var aðalvél skipsins tekin upp og það heilmálað. Lítur Barði afar vel út og er hinn glæsilegasti. Eins og greint hefur verið frá mun áhöfn Bjarna Ólafssonar AK flytjast yfir á Barða.
Viðhaldi á Beiti NK hefur verið sinnt í Neskaupstað frá því að kolmunnaveiðum lauk. Bæði aðalvél og ljósavél skipsins voru yfirfarnar og ýmsum fleiri verkefnum hefur verið sinnt.
Börkur NK sigldi til Skagen í Danmörku að loknum kolmunnaveiðum og hefur verið þar í svonefndum ábyrgðarslipp. Í ábyrgðarslipp er farið yfir búnað skipsins þegar eitt ár er liðið frá því að smíði þess lauk í skipasmíðastöð Karstensens í Skagen. Nefna má að aðalvélar skipsins voru yfirfarnar og ýmsum minniháttar lagfæringum sinnt. Að sögn Grétars Arnar Sigfinnssonar, rekstrarstjóra útgerðar Síldarvinnslunnar, hefur vinnan við Börk gengið afar vel og er gert ráð fyrir að skipið sigli heim á leið um miðja vikuna.
Áformað er að skipin þrjú haldi til makrílveiða upp úr næstu helgi.
Það var sannkölluð rjómablíða þegar nýtt og glæsilegt Hoffell sigldi inn fjörðinn rétt fyrir kl 10:00 í morgun.
Í dag kl. 14:00 verður móttökuathöfn við Bæjarbryggjuna þar sem hið glæsilega skip verður blessað og því gefið nafn. Að athöfn lokinni verður skipið til sýnis og eru allir velkomnir. Sjómenn úr áhöfninni munu fara um skipið með gestum.
Við hvetjum Fáskrúðsfirðinga ásamt íbúum Fjarðabyggðar og aðra gesti til að koma og samgleðjast með okkur á þessum stóru tímamótum í sögu fyrirtækisins.
Hér siglir skipið inn fjörðinn ný málað og glæsilegt með fajllið Hoffell í baksýn. Ljósmynd: Valgeir Mar Friðriksson.Fákrúðsfjörður skartar sínu fegursta er hann tekur á móti glæsilegu uppsjávarskipi Loðnuvinnslunnar. Ljósmynd: Valgeir Mar Friðriksson. 3035 Hoffell Su 80 Ljósmynd: Valgeir Mar Friðriksson.Ljósmynd: Óskar Þór GuðmundssonLjósmynd: Óskar Þór Guðmundsson
Gardar H-34-AV mynd að vef Vinnslustöðvar vestmannaeyja
Stjórn Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum hefur samþykkt að kaupa uppsjávarskipið H-34-AV Gardar af norsku útgerðarfyrirtæki og bæta þar með við fjórða skipinu í uppsjávarflota sinn. Þar eru fyrir Huginn, Ísleifur og Kap.
Skipið fer nú i slipp í Danmörku til hefðbundinnar skoðunar vegna eigendaskipta. Að öllu óbreyttu kemur það til nýrrar heimahafnar í Vestmannaeyjum undir lok júnímánaðar og verður gert klárt til makrílveiða.
Skipstjóri verður Jón Atli Gunnarsson núverandi skipstjóri á Kap VE.
2730 Margret EA710 mynd þorgeir Baldursson
2730 Beitir Nk 123 mynd þorgeir Baldursson
Garðar á sér sögu á Íslandi, annars vegar sem Margrét EA í eigu Samherja og hins vegar sem Beitir NK í eigu Síldarvinnslunnar. Skipið var selt úr landi en núverandi heimahöfn er Björgvin í Noregi.
Garðar er liðlega 70 metra langur og 13 metra breiður. Lestarpláss er 2.100 rúmmetrar.
Sindri Viðarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs Vinnslustöðvarinnar, fór á dögunum ásamt fleirum fulltrúum fyrirtækisins til Skagen í Danmörku til að skoða Garðar þegar hann kom þangað til löndunar:
„Okkur leist strax afar vel á enda er þetta hörkuskip sem búið er að endurnýja margt í og gera mikið fyrir. Aðalvélin er til dæmis ný, afar hagkvæm í rekstri og togkraftur er mikill.
Það er búið að fara yfir kælikerfi og lestar, blökkin er ný og skipið lítur í alla staði vel út.“
Sighvatur Bjarnason VE. Mynd/Óskar P. Friðriksson
Eins segir af skipamálum Vinnslustöðvarinnar að Sighvatur Bjarnason VE hefur verið seldur úr landi.
Fjöldi mynda af skipinu eru birtar í frétt Vinnslustöðvarinnar - sjá hér.