21.09.2020 15:33Steffano Ek 1601 togar í Barentshafi
Skrifað af Þorgeir 19.09.2020 22:08Eskifjörður 18 sept
Skrifað af Þorgeir 19.09.2020 17:00Gerpir Nk 111
Skrifað af Þorgeir 19.09.2020 00:56Lif og fjör i Norðfjarðarhöfn i morgun
Það hefur svo sannarlega verið mikið um að vera í Norðfjarðarhöfn síðustu dagana. Veiðiskip koma og fara og flutningaskip koma og lesta afurðir. Alls staðar eru menn að störfum við löndun eða útskipun.
Í gær var verið að landa síld úr Berki NK og einnig var verið að landa fullfermi úr ísfisktogaranum Vestmannaey VE. Margrét EA kom til hafnar í gær með 730 tonn af síld og fékkst aflinn í einungis einu holi. Verðmætin sem fara um höfnina eru ótrúlega mikil og vinnslustöðvarnar hafa vart undan að taka á móti aflanum samkvæmt frétt á heimasíðu Síldarvinnslunnar.
Þá var verið að skipa út frystum makríl og undirbúa komu Hákonar EA sem var að koma með frysta síld til löndunar. Í gærkvöldi lauk síðan vinnslu úr Berki og þá hófst vinnsla úr Margréti. ísfisktogarinn Bergey VE var kominn til löndunar með góðan afla og hamast var við að landa frystri síld úr Hákoni. Jafnhliða var unnið áfram við útskipun á frystum makríl.
Börkur beið í höfninni eftir að röðin kæmi að honum að halda út á síldarmiðin en Beitir NK hélt til veiða í morgun . Síldveiðin er það góð og miðin í svo mikilli nálægð að einungis eitt skip er að veiðum hverju sinni.
Við bryggju hinnar nýju netagerðar Hampiðjunnar lá síðan grænlenska skipið Polar Amaroq og naut þjónustu netagerðarmannanna. Það er afskaplega gaman að fylgjast með því sem er að gerast við höfnina. Þar er líf og fjör og bullandi traffík.
Skrifað af Þorgeir 18.09.2020 19:06Varskipið Þór við Seley vitatúr að hausti
Áhöfnin á varðskipinu Þór lagði í síðustu viku af stað í árlegan vitatúr í samstarfi við Vegagerðina. Áratugum saman hafa varðskip siglt meðfram ströndum landsins vegna eftirlits með ljósvitum, skerjavitum, sjómerkjum og ljósduflum sem ekki er hægt að komast í frá landi. Áhöfnin á varðskipinu Þór og starfsmenn Vegagerðarinnar sjá um eftirlit og viðhald á vitum og öðrum sjómerkjum í ferðinni. Meðal verkefna í vitatúrunum er að yfirfara rafgeyma og sólarspegla auk þess að endurnýja perur. Einnig er skipt um vindrafstöðvar auk annars tilfallandi viðhalds. Teksti Lhg.is myndir Þorgeir Baldursson
Skrifað af Þorgeir 17.09.2020 22:35Knúsast á austfjarðamiðunum i dag
Skrifað af Þorgeir 17.09.2020 10:58Harðbakur EA 3
Skrifað af Þorgeir 17.09.2020 10:27Vestmannaeyjarskip á Austfjarðamiðum
Skrifað af Þorgeir 15.09.2020 08:05Hebbi Gunn EA
Skrifað af Þorgeir 12.09.2020 13:40Rólegt i Hvalaskoðun á EyjafirðiHvalaskoðun á Eyjafirði hefur heldur betur dregist saman eftir að Covid 19 birjaði þvi að alls voru um 83000 farþegar sem að fóru i Hvalaskoðun árið 2019 frá Akureyri Hauganesi Grenivik og Dalvik og mörg siðustu ár en nú hefur orðið 90% samdráttur i þessu en alls fóru um 364000 farþegar i hvalaskoðun á Islandi árið 2019 þetta hafa verið frábær ár en nú hefur þetta dottið allveg niður vegna þessa að sárafáir ferðamenn eru á landinu og komið er framá haust og hafa flest Hvalaskoðunnarfyrirtækin dregið verulega úr starfsemi sinni og jafnvel sagt upp flestum eða öllum starfsmönnum sinum Whale Vatching Akureyri er eitt þeirra sem að hefur sagt upp starfsfólki en þó voru farnar tvær ferðir i fyrradag með hátt i 20 manns i tveimur ferðum að sögn Jóhanns Heiðarssonar sást einn hnúfubakur fyrir innan Hjalteyri svo að farþegarnir voru himinlifandi með góða ferð
Skrifað af Þorgeir 11.09.2020 22:47Hafrafell og Sandfell SU i slippnum á Akureyri
Skrifað af Þorgeir 11.09.2020 10:23Umhverfisvænir íslenskir sjómennAlllengi hafa íslenskir togarar fært allt að landi sem komið hefur í veiðarfærin. Um ýmiskonar rusl er að ræða, allt frá veiðarfæraleifum til hluta úr sokknum skipum. Þegar í land er komið er öllu síðan fargað eftir þeim reglum sem gilda. Það er löngu liðin tíð að öllu sé dembt í hafið í anda gamla máltækisins „lengi tekur sjórinn við“.Eirikur Sigurðsson Skipstjóri á Reval Viking hefur stundað rækjuveiðar i Smugunni i hátt i 20 ár Tjáði heimasiðunni að mikið magn af krabbagildrum hafi verið i smugunni og hafa skipin verið að hreinsa þetta upp i mörg ár en ásamt gildrunum kemur upp mikið magn af tógi og var þetta þannig að Norskir og skip frá fyrrum Sovétrikjunum bátar drituðu þessu niður og siðan fóru útgerðirnar i þrot og enginn hirti um að sækja þær og þær halda áfram að fiska að sögn Eiriks hefur hrinsunnarstarfið gengið vel en alls hafa þeir verið að koma með allt að 5oo gildrum i túr svo að þið getið rétt ýmyndað ykkur umfang þessara veiða
Tekið skal fram að Ísland á aðild að svonefndum MARPOL-samningi sem er alþjóðasamningur um varnir gegn mengun frá skipum, þar með talinni sorpmengun, olíumengun og loftmengun. Samningurinn er upphaflega frá árinu 1973 en á seinni tímum hafa ýmsir viðaukar og séríslensk ákvæði tekið gildi. Um þessar mundir er hafin flokkun á öllu sorpi og úrgangsefnum um borð í íslenskum skipum og fer förgun síðan fram í landi. Skrifað af Þorgeir 09.09.2020 20:59Skinney og Steinunn SF á toginu
Skinney SF á Toginu á Breiðdalsgrunni i gærdag og hún landaði svo um 70 tonnum af blönduðum afla á Hornafirði i morgun og hélt siðan aftur til veiða að löndun lokinni Steinunn SF landaði á Dalvik i fyrradag um 50 tonnum sem að fengust á Kolbeinseyjarhryggnum og hélt siðan aftur út á miðin
Skrifað af Þorgeir 03.09.2020 22:50Kaldbakur Ea 1 Heldur til veiða frá Akureyri
Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 1625 Gestir í dag: 34 Flettingar í gær: 3977 Gestir í gær: 101 Samtals flettingar: 904481 Samtals gestir: 45712 Tölur uppfærðar: 11.10.2024 06:22:01 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is