18.12.2020 00:10Seyðisfjörður
Skrifað af Þorgeir 16.12.2020 02:11Sólberg ÓF 1
Skrifað af Þorgeir 14.12.2020 22:38Risalöndun hjá Björg EA.7
því snarvitlaust veður var í byrjun desember og t.d tók Samherji þá ákvörðun um að sigla öllum togarflotanum sínum í höfn og láta togaranna bíða í landi á meðan að mesta óveðrið gekk yfir. Togarnir fóru síðan að tínast út þegar veður fór að skána og veiðin hjá þeim var mjög góð Togarinn Björg EA lenti heldur betur í Mokveiði en togarinn var við veiðar við norðurlandið og kom til Dalvíkur með sína stærstu löndun sína frá þvi að togarinn kom til íslands og hóf veiðar Björg EA landaði nefnilega 250,3 tonnum af fiski eftir 6 daga túr höfn í höfn og það gerir um 42 tonn á dag af þessum afla þá voru 191 tonn af þorski og 34 tonn af ýsu aflafrettir.is
Skrifað af Þorgeir 14.12.2020 22:20Samherjaskip á Pollinum
Skrifað af Þorgeir 14.12.2020 21:28Halldór Nellett lýkur glæsilegum ferliHalldór Nellett lýkur glæsilegum ferli9. desember 2020 kl. 15:41
Halldór Nellett Skipherra á Þór gengur frá Borði mynd Landhelgisgæslan
Halldór var heiðraður af samstarfsfélögum við komuna til Reykjavíkur.Halldór Nellett, skipherra á varðskipinu Þór, lauk tæplega hálfrar aldar ferli hjá Landhelgisgæslunni þegar varðskipið kom til hafnar í Reykjavík í morgun. Halldór var heiðraður af samstarfsfélögum við komuna til Reykjavíkur en áhafnir beggja varðskipa, Þórs og Týs, stóðu heiðursvörð þegar skipið sigldi til hafnar. Að auki fylgdi TF-GRO, þyrla Landhelgisgæslunnar, Halldóri síðasta spölinn til Reykjavíkur sem og hafnsögubátur Faxaflóahafna. Þá stóðu nokkrir starfsmenn Landhelgisgæslunnar einnig heiðursvörð á bryggjunni þegar Halldór steig frá borði og þremur púðurskotum var skotið úr fallbyssu honum til heiðurs. Georg Kr. Lárusson tók á móti honum við komuna og þakkaði honum fyrir óeigingjarn starf í þágu lands og þjóðar. Frá þessum tímamótum er sagt á heimasíðu Landhelgisgæslunnar. Þar segir að ferill Halldórs hjá Landhelgisgæslu Íslands er bæði farsæll og viðburðaríkur. Hann einkennist af fórnfýsi, útsjónarsemi og ástríðu fyrir björgunarstörfum. Halldór var einungis 16 ára þegar hann var ráðinn messagutti um borð í varðskipinu Ægi árið 1972. Sex árum síðar útskrifaðist hann úr farmannadeild Stýrimannaskólans í Reykjavík og lauk varðskipadeild sama skóla í kjölfarið. Halldór hefur gegn störfum sem skipstjórnarmaður á varðskipum og loftförum Landhelgisgæslu Íslands í fjölda ára. Hann hefur siglt sem skipherra frá árinu 1992 og hefur verið fastráðinn sem slíkur frá árinu 1996. Hann tók þátt í tveimur þorskastríðum og var jafnframt í áhöfn varðskipsins Ægis sem kallað var út þegar gos hófst á Heimaey 23. janúar 1973. Hann hefur gegnt fjölda starfa innan Landhelgisgæslunnar, meðal annars sem yfirmaður aðgerða og var staðgengill forstjóra í kringum aldamótin. Þá tók hann virkan þátt í uppbyggingu þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar á níunda áratug síðustu aldar og starfaði bæði sem spilmaður og sigmaður um borð í björgunarþyrlunni TF-SIF. Halldór reyndi jafnframt fyrir sér í millilandasiglingum en kom fljótt aftur til Landhelgisgæslunnar þar sem hann hefur lagt lóð sitt á vogarskálarnar í leitar- og björgunarmálum í þágu íslensku þjóðarinnar. Skrifað af Þorgeir 13.12.2020 06:31Hoffell Su 80 með kolmunna
Skrifað af Þorgeir 02.12.2020 23:15Öll skip Samherja í land vegna veðurs
Öll skip Samherja eru komin til hafnar. Ákveðið var að þau myndu „flýja veðrið“ eins og Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóri útgerðarsviðs fyrirtækisins, orðaði það í samtali við Akureyri.net í dag. Fjögur skipanna eru við bryggju á Akureyri, Björgúlfur, Björgvin, Kaldbakur og Björg, en Harðbakur er á Dalvík. Björgúlfur átti að leggjast að bryggju á Dalvík í morgun að sögn Kristjáns, en varð að hætta við vegna þess hve hvasst var orðið og vont í sjóinn, og sigla til Akureyrar. Kristján segir mjög óalgengt að skip komi í land vegna veðurs, en ekki hafi annað þótt hægt að þessu sinni. Spáð er vitlausu veðri á miðunum næsta sólarhringinn. „Við stefnum að því að flestir fari út á ný seint annað kvöld,“ sagði Kristján. Skipin höfðu öll verið að veiðum norður eða norðvestur af landinu.
Skrifað af Þorgeir 30.11.2020 14:11Sigurður Ve 15 með kolmunna
Skrifað af Þorgeir 28.11.2020 20:45Bliða á Eskifirði
Skrifað af Þorgeir 27.11.2020 21:32Kolmunnaveiðar í Færeysku lögsögunni
Skrifað af Þorgeir 27.11.2020 21:22Venus Ns á heimleið með kolmunna
Skrifað af Þorgeir 27.11.2020 03:44Varðskipið Týr í bræluVarðskipið Týr á siglingu frá Reykjavík mynd þorgeir Baldursson Skrifað af Þorgeir 26.11.2020 05:10Lífið í sandgerðisbót
Skrifað af Þorgeir 25.11.2020 21:33Brúarfoss kemur til ReykjavíkurHið nýja gámaskip Eimskips kom til hafnar í Reykjavík um kl 1945 Og tók Jón Páll Ásgeirsson meðfylgjandi myndir og sendi mér
Skrifað af Þorgeir 24.11.2020 22:56Loðnan að ganga uppað landinu
„Við fundum strax loðnu. Hún var dálítið blönduð fyrst en fljótlega var einungis um að ræða stóra kynþroska loðnu,“ segir Geir Zoëga skipstjóri á Polar Amaroq á vef Síldarvinnslunnar, en grænlenska uppsjávarskipið hélt til loðnuleitar á föstudag. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi standa fyrir leiðangrinum sem er farinn í samráði við Hafrannsóknastofnun og mun hann taka um viku. „Það hefur semsagt verið loðna á 180 sjómílna belti sem við höfum nú farið yfir og inn á milli hafa verið góðar torfur. Loðnan kemur að norðan og virðist vera að ganga upp að landinu í verulegu magni. Þetta ætti ekki að koma á óvart og er í góðum takti við haustmælinguna 2019. Ég hef verið bjartsýnn á loðnuvertíð í vetur og nú hef ég góð rök fyrir bjartsýninni. Þetta lítur bara afskaplega vel út,“ segir Geir. Í samráði við HafróSkömmu fyrir hádegi í dag var verið að taka sýni norðaustur af Kolbeinsey. „Þessi leiðangur er farinn í nánu samráði við Hafrannsóknastofnun en þó er enginn fulltrúi frá stofnuninni um borð. Við tökum sýni og könnum þau og frystum einnig sýni fyrir stofnunina. Hafrannsóknastofnun fær öll gögn leiðangursins þannig að allt er gert eins og um hefðbundna vetrarmælingu sé að ræða.“ „Við hófum leitina norðvestur af Straumnesi en síðan eru farnir ákveðnir leggir austur með kantinum. Það var full ástæða til að leita núna enda hafa borist heilmiklar loðnufréttir frá togurum sem hafa verið að veiðum á svæðinu,“ útskýrir skipstjórinn. Tvísýnt hefur verið með loðnuvertíð vegna síðustu mælinga Hafrannsóknastofnunar og hefur verið talið að verulegir ágallar séu með mælingar hennar vegna aðstæðna þegar mælingar voru framkvæmdar. Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 717 Gestir í dag: 69 Flettingar í gær: 1465 Gestir í gær: 61 Samtals flettingar: 887969 Samtals gestir: 45162 Tölur uppfærðar: 4.10.2024 09:51:41 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is