18.05.2021 22:50Sæþór Ea 101og Arnþór EA 102
Skrifað af Þorgeir 18.05.2021 21:26Hoffell Su 80
Skrifað af Þorgeir 17.05.2021 20:29Húmar að kvöldi í Eyjafirði
Skrifað af Þorgeir 17.05.2021 04:19Hvalaskoðun Frá Akureyri3
Skrifað af Þorgeir 13.05.2021 20:09þórunn Sveinsdóttir Ve 401
Skrifað af Þorgeir 13.05.2021 13:56Gullver Ns12 mokfiskar
Skrifað af Þorgeir 10.05.2021 10:59ÝSAN ÞVÆLDIST ALLS STAÐAR FYRIR
,Það er óhætt að segja að okkur hafi gengið ágætlega. Alls vorum við með tæplega 800 tonna afla upp úr sjó eftir 27 daga á veiðum. Aflinn hefði þó örugglega verið meiri ef ýsan hefði ekki alls staðar verið að þvælast fyrir okkur. Það var reyndar bætt 8.000 tonnum við ýsukvótann á dögunum en mér skilst að sú aukning eigi að dragast af ýsukvóta næsta fiskveiðiárs.” Þetta sagði Haraldur Árnason, skipstjóri á frystitogaranum Höfrungi III AK, er rætt var við hann um gang mála á heimasíðu Brims. Höfrungur III fór út 8. apríl sl. og kom til Reykjavíkur á fimmtudag. Haraldur segist hafa byrjað veiðar á Eldeyjarbankanum og þar var skipið lengst af túrnum. ,,Við vorum beðnir um að veiða sem mest af ufsa. Það gekk vel en hvar sem við dýfðum trolli kom ýsa með sem aukaafli. M.a.s. á þekktum gullkarfamiðum kom ýsan með og ég held ég fari rétt með það að ýsuaflinn hjá okkur hafi verið um 80 tonn en þó reyndum við að forðast ýsuna eftir megni. Það er víða mikið magn af gullkarfa en menn hafa orðið að draga úr veiðum vegna þess að þeir eiga lítinn ýsukvóta.” Afla var millilandað eftir um 10 daga á veiðum og segir Haraldur að magnið hafi verið um 370 tonn upp úr sjó. ,,Við fórum svo aftur á suðvesturmið. Við vorum mest á Eldeyjarbankasvæðinu. Fórum ekkert á Selvogsbankann en þar var allt lokað þegar við hófum veiðar. Rétt skruppum út í Skerjadjúp en stöldruðum stutt við. Okkur var einnig uppálagt að veiða eitthvað af grálúðu og því fórum við norður á Vestfjarðamið. Grálúðuslóðin er út af Hampiðjutorginu og einnig fórum allt út á Geirastaði en það veiðisvæði er VSV af Halanum. Þetta svæði er svo langt frá landi að það er stutt í Dohrnbankann,” segir Haraldur en hann kveður að minna hafi orðið úr grálúðuveiðunum en vonir stóðu til vegna mikils hafíss á slóðinni. ,,Við náðum e.t.v. einum skaplegum degi en svo flæddi hafísinn yfir og kom í veg fyrir veiðar. Við fórum svo í Víkurálinn og fengum ágætan ufsaafla. Vinnslan var rekin á fullum afköstum í túrnum ef þessir dagar á grálúðuveiðum eru undanskildir,” segir Haraldur Árnason. heimild Auðlindin.is Skrifað af Þorgeir 07.05.2021 01:13Jón Hildiberg RE 60
Skrifað af Þorgeir 05.05.2021 12:04kolmunnaalöndun á Fáskrúðsfirði
Skrifað af Þorgeir 04.05.2021 22:56Doddi SH 2232716 Doddi SH 223 kemur til hafnar í Reykjavík mynd þorgeir Baldursson 2021
Skrifað af Þorgeir 02.05.2021 03:55Hringur Ís 305
Skrifað af Þorgeir 21.04.2021 23:57Snekkjan A i Krossanesi i kvöld
Ein stærsta snekkja í heimi sigldi inn Eyjafjörð í kvöld og verður í Krossanesvíkinni á næstunni. Hún kallast einfaldlega A, er í eigu rússnesks viðskiptajöfurs, Andrey Melnichenko, og verður hér um tíma – jafnvel nokkrar vikur, eftir því sem næst verður komist. Snekkjan er 142 metra löng og möstrin ná 100 metra hæð, sem er ástæða þess að A siglir ekki inn á Pollinn; möstrin gætu truflað flugumferð. Til gamans má geta til samanburðar að Hallgrímskirkjuturn er 75 metra hár!
Andrey Igorevich Melnichenko er 49 ára milljarðamæringur. Samkvæmt viðskiptaritinu Forbes var hann 95. ríkasti maður heims í síðasta mánuði og sjöundi ríkasti Rússinn. Hann er ekki um borð í A skv. heimildum Akureyri.net en er sagður væntanlegur. Melnichenko á aðra snekkju sem hann kallar A; til aðgreiningar er þessi nefnd seglsnekkjan A, þótt hún gangi einnig fyrir vélarafli, en hin vélsnekkjan A. Sú síðarnefnda kom til Akureyrar 2016 og var á Pollinum um tíma. Vakti hún mikla athygli fyrir óvenjulegt útlit. Heimild Akureyri.net Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 3426 Gestir í dag: 23 Flettingar í gær: 2732 Gestir í gær: 52 Samtals flettingar: 1789528 Samtals gestir: 65100 Tölur uppfærðar: 16.8.2025 16:25:58 |
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is