13.11.2021 12:36Bæta við fjórða uppsjávarskipinuÍsfélagið í Vestmannaeyjum undirbýr loðnuvertíð með kaupum á uppsjávarskipinu Ginneton. Skipið mun bera nafnið Suðurey VE 11.
Uppsjávarskipið Ginneton sem Ísfélag Vestmannaeyja hefur fest kaup á hlýtur nafnið Suðurey VE 11. Skipstjóri verður Bjarki Kristjánsson, núverandi stýrimaður á Sigurði VE, og áhöfnin kemur af Dala-Rafni og Ottó N. Þorlákssyni. Bolfiskveiðar verða aflagðar hjá Ísfélaginu meðan loðnuvertíð stendur sem hæst og líklega verður haldið í loðnuleit seinna í þessum mánuði. Útgefinn loðnukvóti fyrir komandi loðnuvertíð er 904.200 tonn og hefur 626.975 tonnum verið úthlutað til íslenskra skipa. Ísfélag Vestmannaeyja er með stærsta kvótann, 19,99%, sem er millimetra frá 20% hámarkinu. Ísfélaginu er því heimilt að veiða 125.313 tonn. Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri Ísfélagsins, segir að í kjölfar þess að veiðiheimildirnar voru kynntar hafi Ísfélagið leitað fyrir sér að nýju uppsjávarskipi til að bæta við þau þrjú sem þegar eru í rekstri, þ.e. Sigurð VE, Álsey VE og Heimaey VE. „Menn áttu svo sem von á því að gefinn yrði út stór kvóti en þetta var meira en við reiknuðum með. Það voru ekki mörg skip í boði sem voru á lausu fyrir áramót. Sumir voru tilbúnir að selja en þá með afhendingu hugsanlega um mitt næsta ár sem hentaði okkur auðvitað ekki. Það var því ekki úr mörgum skipum að velja þegar á reyndi en við teljum okkur hafa verið heppna með þetta skip,” segir Eyþór.
Ginneton var í eigu sænsku útgerðarinnar Gifico sem hefur undirritað samning Karstensens skipasmíðastöðina í Danmörku um smíði nýs uppsjávarskips sem verður afhent 2023. Skipið var smíðað 2006 og er 62 metra langt og 13 metra breitt og í því er 1.348 rúmmetra rými fyrir afla. „Skipið er á veiðum núna úr uppsjávarkvótum í Norðursjó og Eystrasaltinu. Því hefur verið vel við haldið og er í fínasta lagi. Þeir klára bara sitt prógram á næstu dögum og þá fer skipið í vélarskveringu og undirbúning fyrir afhendingu.” Loðnuleit í lok mánaðar Eyþór segir það ekkert nýtt hjá Ísfélaginu að draga úr bolfiskveiðum meðan á loðnuvertíð stendur. Vinnslan verði undirlögð fyrir uppsjávarvinnslu og lítið unnið með bolfisk á meðan svo er. Keyrt verði harðar á bolfiskveiðum þegar loðnuvertíðinni lýkur. Hjá Ísfélaginu eru vanir sjómenn sem eru fljótir að aðlagast nýju skipi og nýjum aðstæðum. Þó segi það sig sjálft að þegar farið er út úr loðnuleysisárum yfir í vertíð eins og framundan er, að alltaf megi búast við því að skóla þurfi einhverja til. Eyþór segir margt velta á því hvernig viðri til veiðanna í vetur. Ísfélagið ætlar að hefja loðnuleit seinni hluta þessa mánaðar að afloknum síldveiðum. Líklega hefjist leitin út af Vestfjörðum en vonandi verði loðna farin að ganga austur eftir einhvern tíma í desember. „Núna er þetta það mikið magn að við þurfum ekki nema brot af okkar kvóta fyrir hrognatökuna. Tíminn fyrir hrognatöku er ekki nema tvær til þrjár vikur. Vinnslan hefur líka takmarkaða afkastagetu en bræðslan bræðir sín þúsund tonn tæp á sólarhring. En það spilar saman núna stór loðnuvertíð og sögulega hátt verð á fiskmjöli. Það er ekkert sem bendir til þess að mjölverð hrynji þótt stefni í góða vertíð hjá okkur. Ísland er ekki það stórt á heimsmarkaðnum að þessi vertíð okkar breyti mjölverði.” Fiskifrettir .is Skrifað af Þorgeir 11.11.2021 23:04AFLAGJÖLD ARCTIC FISH HÆKKA ÖRT
Hafnargjöld sem Arctic Fish greiðir af eldisfiski stefna í að verða 59% hærri í ár en þau voru í fyrra. Árið 2020 voru hafnargjöldin greidd til þriggja sveitarfélaga, Vesturbyggðar, Tálknafjarðar og Ísafjarðarbæjar samtals 42,5 m.kr. Á þessu ári stefnir í að þau verði 67,7 mkr. Þetta kemur fram í svörum Arctic Fish við fyrirspurnum Bæjarins besta. Í fyrra fóru 93% af hafnargjöldunum til Vesturbyggðar, 5% til Ísafjarðarbæjar og 1% til Tálknafjarðar. Á þessu ári er hlutur Vesturbyggðar nærri 96%. Langstærstur hluti hafnargjaldanna er aflagjald. Í fyrra var það 38,8 m.kr. af 42,5 m.kr. Hafnargjöld voru 3,6 m.kr. og 0,1 m.kr. voru vörugjöld. Allt aflagjaldið rann til Vesturbyggðar þar sem það greiðist til löndunarhafnarinnar. Eldisfiski úr kvíum á Vestfjörðum var landað til slátrunar á Bíldudal. Í fyrra kom stærstur hluti eldisfisks Arctic Fish úr kvíum við Eyrarhlíð í Dýrafirði. Aflagjald af þeim fiski nam 31,1 m.kr. Af eldisfiski frá Kvígindisdal í Patreksfirði var greitt 7,7 m.kr. í aflagjald. Aflagjöldin orðin 54 m.kr. Fyrstu 10 mánuði ársins 2021 eru aflagjöldin orðin 54 m.kr. Nú er fiskurinn að mestu úr kvíum í Tálknafirði og Patreksfirði. Gert er ráð fyrir að aflagjöldin verði 63 mkr. á árinu og hækki um 62% milli ára. BB.IS Skrifað af Þorgeir 11.11.2021 22:59Blængur næst í Barenshafið 1345 Blængur NK 125 á toginu. Mynd/Þorgeir Baldursson
Aflinn 860 tonn í síðasta túr að verðmæti 310 milljónir.
Frystitogarinn Blængur NK landaði í Neskaupstað í fyrradag að lokinni 39 daga veiðiferð. Veiðiferðin var tvískipt en skipið millilandaði 20. október sl. Aflinn var 860 tonn og verðmæti hans 310 milljónir króna, að því er segir á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Bjarni Ólafur Hjálmarsson var skipstjóri í veiðiferðinni og segir hann í viðtali í frétt Síldarvinnslunnar að veðrið hafi reynst þeim Blængsmönnum erfitt: „Það var mikið af brælum í þessum túr. Það má segja að túrinn hafi einkennst af flótta undan veðri. Þegar hægt var að veiða gekk það hins vegar bara vel. Við vorum mest á Vestfjarðamiðum en síðan veiddum við gulllax fyrir sunnan land. Aflinn var býsna blandaður; mest ufsi, grálúða og þorskur. Næst á dagskránni hjá Blængi er túr í Barentshafið en ég mun sleppa við hann. Nýr skipstjóri, Sigurður Hörður Kristjánsson, mun fara með skipið þangað og hann þekkir Barentshafið vel, allavega Noregsmegin,“ segir Bjarni Ólafur
Skrifað af Þorgeir 10.11.2021 22:24Vilhelm Þorsteinsson Ea11 og Börkur Nk 122 á Neskaupstað
Skrifað af Þorgeir 10.11.2021 15:00Ekki sérstök síldveiði fyrir vestan eins og er
Síldarvinnsluskipin Börkur NK, Beitir NK og Barði NK eru öll að síldveiðum vestur af landinu um þessar mundir. Börkur kom til Neskaupstaðar með 1.340 tonn sl. mánudag en þar var um að ræða hans eigin afla og einnig afla Beitis. Beitir NK er á austurleið með tæp 700 tonn þegar þetta er skrifað og segir Sturla Þórðarson skipstjóri að bræla hafi verið á miðunum og veiðin hafi ekki verið sérstök. Barði lá í Reykjavíkurhöfn á meðan brælan gekk yfir en hélt til veiða í gær. Rætt var við Atla Rúnar Eysteinsson skipstjóra í morgun og sagði hann að þeir væru á fyrsta holi. „Skipin hérna hjá okkur hafa verið að hífa og það er ekki mikill afli akkúrat núna, en það getur breyst skjótt,“ sagði Atli Rúnar. Jón Gunnar Sigurjónsson, yfirverkstjóri í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar, segir að vinnslan á íslensku sumargotssíldinni gangi vel þó ekki sé jafn gott að vinna hana og norsk-íslensku síldina. „Norsk-íslenska síldin er stærri og heldur betra hráefni,“ segir Jón Gunnar. www.svn.is Skrifað af Þorgeir 10.11.2021 07:45Vestmannaey frá veiðum fram í febrúar
Eins og lesendum heimasíðunnar er kunnugt um kom upp eldur í ísfisktogaranum Vestmannaey VE 27. október sl. þegar skipið var á leið til löndunar í Neskaupstað. Sem betur fer tókst fljótt að ráða niðurlögum eldsins en systurskipið Bergey VE tók Vestmannaey í tog ásamt því sem hafnsögubáturinn Vöttur kom á vettvang með slökkviliðsmenn úr slökkviliði Fjarðabyggðar. Komu skipin til Neskaupstaðar þar sem skemmdir voru kannaðar og reyndust þær töluverðar. Stimpilstöng hafði brotnað og gengið út úr blokk annarrar aðalvélar skipsins og eldurinn fylgt í kjölfarið. Þegar allar aðstæður um borð höfðu verið kannaðar frekar sigldi skipið frá Neskaupstað til Vestmannaeyja á þeirri aðalvél sem heil var. Sl. miðvikudag hélt Vestmannaey síðan til Reykjavíkur þar sem viðgerð mun fara fram. Guðmundur Alfreðsson, útgerðarstjóri Bergs-Hugins, segir að gera megi ráð fyrir að viðgerð á skipinu verði ekki lokið fyrr en í febrúar á næsta ári. Lokið er við að finna nauðsynlega varahluti sem koma frá Japan og síðustu daga hefur vélarúmið verið hreinsað og farið nákvæmlega yfir allar skemmdir. Það eru fyrirtækin Raftíðni og Framtak-stálsmiðja sem munu annast viðgerð á vélinni og vélarúminu. Skrifað af Þorgeir 10.11.2021 07:38Jón Kjartansson su 111
Skrifað af Þorgeir 09.11.2021 23:31Minerva EA100
Skrifað af Þorgeir 09.11.2021 22:02Berglin GK 300
Skrifað af Þorgeir 09.11.2021 15:58Fyrrum Oddeyrin EA kominn yfir 10.000 tonnNúna er nýjasti listinn yfir afla togaranna í Noregi kominn hérna á aflafrettir
og nokkuð gott ár hjá þeim í Noregi, alls hafa 13 togarar veitt yfir 9 þúsund tonninj og það gæti farið svo að allir þessir myndir
fara yfir 10 þúsund tonnin þegar árið er liðið, 6 togarar hafa veitt yfir 10 þúsund tonnin
og stór hluti af þessum skipum er að heilfrysta fiskinn,
einn af þeim sem er kominn yfir 10 þúsund tonnin er togari sem átti sér sögu hérna á Íslandi,
Oddeyrin EA 210 kom til landsins árið 2007 og var við veiðar hér við land í 10 ár, enn var seldur til Noregs
og heitir þar Kagtind II,
núna hefur þessi togari náð að veiða yfir 10 þúsund tonnin og er þegar þessi orð eru skrifuð í sæti númer 6,
alls er aflinn hjá skipinu 10432 tonn í 17 löndunum eða 614 tonn í löndun, stærsta löndunin var 1055 tonn,.
mest af þessum afla eða 3062 tonn er karfi
3020 tonn af þorski
1882 tonn af ýsu
og 1694 tonn af ufsa
Skrifað af Þorgeir 09.11.2021 09:16Allt pikkfast - herskip sýndi mikinn áhuga
Trollhaugurinn á Dekkinu á Gullver Ns 12 mynd Hjálmar ólafur Bjarnasson Rétt eftir miðnætti aðfaranótt sl. fimmtudags festi togarinn Gullver NS veiðarfærin kyrfilega í botni þar sem skipið var að veiðum á Glettinganesgrunni. Trollið var fast á 110 faðma dýpi. Strax var byrjað að reyna að losa veiðarfærið; reynt var að hífa og toga í allar áttir en ávallt var allt pikkfast. Að því kom að grandarinn bakborðsmeginn slitnaði og yfirleitt er unnt að losa þegar það gerist en því fór fjarri í þessu tilviki. Skipverjar settu út slæðu til að festa í trollinu en það breytti engu. Að því kom að trollið, slæðan og annar hlerinn slitnuðu frá skipinu og þá var ekkert annað að gera en að sigla inn til Seyðisfjarðar þar sem náð var í nýja slæðu og hlera. Áhöfninni á Gullver er meinilla við að skilja eftir drauganet í sjó og því skyldi allt reynt til að ná trollinu upp. Drauganet geta verið mikill skaðvaldur og bæði fiskur og fuglar setið föst í þeim. Strax var haldið á ný á staðinn þar sem trollið var fast en nemar á veiðarfærinu gefa til kynna hvar það er niður komið. Og nú gekk allt vel því að í annarri tilraun tókst að festa slæðuna í trollinu. Síðan var híft og þá kom ýmislegt í ljós. Auk veiðarfærisins sem Gullver hafði tapað fylgdi með poki og höfuðlína úr gömlu trolli. Þá fylgdi einnig ýmislegt járndót eins og bóma, rótor og fleira og gúmmíbjörgunarbátur að auki. Þegar þetta allt var komið inn á dekkið á Gullver var það sneisafullt og ekki nokkur leið að greiða úr allri flækjunni um borð. Því var siglt inn til Seyðisfjarðar á ný og allt sem á dekkinu var híft í land. Að sögn Hjálmars Ólafs Bjarnasonar, stýrimanns á Gullver, sýndi Landhelgisgæslan öllu því, sem upp úr sjónum kom, mikinn áhuga og þegar í land var komið mættu lögreglumenn til að skoða það. Þá bað gæslan einnig um myndir af öllu því sem Gullver færði að landi. Á framansögðu sést að Gullver hafði fest trollið í skipsflaki og ljóst var vegna gamla trollsins sem upp kom að Gullversmenn voru ekki þeir fyrstu til að flækja veiðarfæri í flakinu. Hjálmar Ólafur segir að eitt hafi vakið athygli Gullversmanna þegar glímt var við að ná veiðarfærinu lausu; erlent stórt herskip var á sveimi í kringum togarann og virtist sýna honum mikinn áhuga. „Það dólaði í kringum okkur um tíma en hvarf síðan á braut. Við sáum engar merkingar á skipinu og ekki heldur fána þannig að við vitum ekki hverrar þjóðar það var, en líklega getur Landhelgisgæslan svarað því,“ segir Hjálmar Ólafur. Heimasíðan ræddi við Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar, og spurði hann hvers vegna lögregla hefði kannað það sem Gullver kom með að landi og eins var spurt um herskipið sem um ræðir. Ásgeir sagði að þegar ljóst var að Gullver hefði híft um borð hluti úr skipsflaki þá væri það föst regla að lögregla aflaði upplýsinga um slíka hluti. Landhelgisgæslan sendi síðan upplýsingar um málið til Rannsóknanefndar samgönguslysa. Ásgeir sagði að þarna væri líklega um að ræða hluti úr skipi sem sokkið hefði eftir 1960. Hvað herskipið varðar upplýsti Ásgeir að þarna hefði breskt herskip verið á ferðinni á alþjóðlegu hafsvæði og hefði það komið til hafnar í Reykjavík um helgina. Þegar kannað var hvaða skip hafa farist á umræddum slóðum eftir 1960 kom fljótt upp nafnið Sæúlfur frá Tálknafirði. Sæúlfur var á landleið með síldarfarm 25. nóvember 1966 þegar hann sökk um 23 sjómílur austur af Dalatanga. Áhöfninni var bjargað um borð í síldarskipið Vonina. Sæúlfur var smíðaður í Austur-Þýskalandi árið 1962, en lengdur árið 1965 og eftir lenginguna var hann 240 lestir að stærð.
Skrifað af Þorgeir 07.11.2021 08:35Helgi Hallvarðs Ns 30
Skrifað af Þorgeir 06.11.2021 20:30Varðskipið Freyja á Siglufirði
Skrifað af Þorgeir 05.11.2021 21:40Sjávarútvegsráðstefnunni frestaðSjávarútvegsráðstefnunni frestað5. nóvember 2021 kl. 16:30
Allt i Hnút Mynd/Svavar Hávarðarsson
Stjórn Sjávarútvegsráðstefnunnar hefur ákveðið að fresta ráðstefnunni sem halda átti 11.-12. nóvember nk. þar til í janúar 2022.
Í tilkynningu frá skipuleggjendum ráðstefnunnar segir: Vegna aukinna covid smita í samfélaginu hefur stjórn Sjávarútvegsráðstefnunnar ákveðið að sýna ábyrgð og fresta ráðstefnunni sem halda átti 11.-12. nóvember nk. til janúar 2022. Haft var samband við fjölmarga aðila sem tengjast ráðstefnunni varðandi ákvörðunartöku. Nákvæm dagsetning verður auglýst í næstu viku. Skrifað af Þorgeir 05.11.2021 16:45Mikið að gera i Slippnum á Akureyri
Næg verkefni eru hjá Slippnum á Akureyri um þessar mundir og þar ber hæðst að verið er að skipta um kælimiðla um borð i Hrafni Sveinbjarnarssyni Gk 255 og Arnari HU 1 verður skipinu siglt í slipp hjá Slippnum á Akureyri, þar verður stærsta verkefnið að skipta um frystikerfi þar sem núverandi kerfi og kælimiðill verða fjarlægð og nýtt kerfi með umhverfisvænni kælimiðli sett í staðinn,og verður sett Ammoniak i bæði skipinn staðinn fyrir Freon sem að hefur verið bannað það verkefni er unnið í samstarfi við Kælismiðjuna FROST sem hefur séð um hönnun og samsetningu kerfisins. Einnig verður farið í hefðbundið viðhald þar sem áætlað er að skrokkur verði þykktarmældur, aðal og ljósavélar fari í upptekt, leguskipti verði í gír og togvindum, farið verði í viðhald á skrúfubúnaði, skipið verður málað að utan og innan ásamt öðrum hefðbundnum verkefnum. Einhver endurnýjun verður á búnaði og má til dæmis nefna að nýr M500 hausari frá Vélfag mun senda í land roskinn Baader hausara sem hefur þjónað okkur dyggilega síðustu ár. segir á heimasiðu Fisk Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 346 Gestir í dag: 9 Flettingar í gær: 4063 Gestir í gær: 33 Samtals flettingar: 1119472 Samtals gestir: 52250 Tölur uppfærðar: 18.1.2025 02:49:02 |
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is