26.12.2021 23:06Július Geirmundsson is 270
Skrifað af Þorgeir 26.12.2021 11:28Það vantar allt malt í þettaGuðjón Guðmundsson22. desember 2021 kl. 13:00
Eyjólfur Guðjónsson skipstjóri á Ísleifi VE. Mynd/Óskar P. Friðriksson
Ísleifur VE í sinni annarri loðnulöndun.Loðnuflotinn íslenski er kominn í land í jólafrí eftir fremur daufgerða byrjun á vertíðinni. Tilkynnt var um 904.000 tonna loðnukvóta í byrjun október og þar af var 627.000 tonnum úthlutað til íslenskra skipa. Veiðar máttu hefjast um miðjan október en hófust þó ekki að ráði fyrr en seinnihluta nóvember. Áætla má að íslensku skipin hafi nú veitt nálægt 10% af úthlutuðum aflaheimildum, eða nálægt um 60.000 tonnum. Mikil bjartsýni ríkti í kjölfar kvótaúthlutunarinnar og spáði greiningardeild eins bankans að útflutningsverðmæti loðnu gæti orðið 50-70 milljarðar eða jafnvel meira. Hækkaði bankinn hagvaxtarspá sína fyrir næsta ár um 0,8%. Veiðarnar hafa hins vegar ekki gengið af miklum krafti fram til þessa og hafa sjómenn á orði að loðnan haldi sig djúpt og veiðist lítt að næturlagi. Eyjólfur Guðjónsson skipstjóri á Ísleifi VE hefur marga fjöruna sopið og verið á öllum loðnuvertíðum allt frá árinu 1977 þau ár sem loðnuveiðar hafa verið heimilaðar. Ísleifur VE kom inn til löndunar í Vestmannaeyjum aðfaranótt sunnudags í sinni annarri löndun á þessari vertíð. „Það hefur verið frekar rólegt yfir þessu. Það vantar allt malt í þetta. Þó hefur eitthvað verið að bætast í veiðina síðustu dagana. Það veiðist á stærra svæði og var heldur skárra en þetta var í byrjun. Við vorum þarna 50-60 sjómílur aust-norðaustur af Langanesi. Loðnan þokast aðeins í austur í rólegheitunum,“ segir Eyjólfur. Ef þeir hafa mælt rétt Hann segir lóðningarnar ágætar en gangurinn á þessu sé dálítið sérstakur. Veiðarnar gefa lítið af sér nema bara yfir hádaginn, eða frá því um níu á morgnana til þrjú eða fjögur síðdegis. Síðan veiðist lítið eftir það. Eyjólfur er reynslumikill loðnuskipstjóri og segir margt með dálítið öðrum hætti en oftast áður. „Engu að síður var það svo að síðasta daginn, áður en við fórum af miðunum, þá dró ég fram á kvöld og það skilaði einhverju. Í framhaldinu köstuðu fleiri þarna og drógu þá nótt og fengu einhvern afla. Þetta er því vonandi eitthvað að breytast núna. Loðnan hefur legið djúpt og nánast ekkert komið upp fyrir 50 faðma. Mér finnst það frekar óvenjulegt. Aðeins tvisvar sá ég torfur koma upp á einhverja 20-30 faðma.“ Eyjólfur sagði ómögulegt að segja hvað valdi þessum takti núna. Hann var búinn að fara tvo loðnutúra á Ísleifi VE enda sagði langt að fara frá Eyjum. Stímið þaðan að veiðisvæðinu er rúmur sólarhringur. Í þessum tveimur túrum fengust 1.430 tonn og um 1.600 tonn í seinni túrnum. Ísleifur ber 2.000 tonn. Loðnan var stór og falleg og lítið upp á hana að klaga. „Þetta verður vonandi betra eftir áramótin. Við höldum til veiða aftur 3. janúar á svipaðar slóðir en loðnan gengur auðvitað eitthvað áfram í austurátt. Þetta er sögulega stór kvóti og það þarf að vera gott veður og aðstæður í vetur til þess að hann náist allur. Veðrið hefur leikið við okkur í desember og maður varla vitað af því að maður væri á sjó. Það er samt ekki hægt að leggja mat á þessa vertíð ennþá, hún er svo nýbyrjuð. En ef þeir hafa mælt rétt hlýtur að verða mikið veitt af loðnu í vetur.“ Skrifað af Þorgeir 26.12.2021 11:08Færeysk islensk og franskt skip á pollinum
Skrifað af Þorgeir 26.12.2021 02:05Samherjaskip við Bryggju á Akureyri
Skrifað af Þorgeir 25.12.2021 15:28Vilhelm Þorsteinsson EA11 i jólabúning
Skrifað af Þorgeir 25.12.2021 14:39Héldu jólin í skjóli á íslenskum firði
Franska herskipið Bretagne er nú statt á Pollinum inn á Eyjafirði, en það var í Reykjavík á dögunum þar sem áhafnarskipti fóru fram. Hélt skipið svo áfram för sinni norður fyrir land og fékk áhöfnin að halda jól í skjóli inn á Eyjafirði. enda var 10 stiga frost og pollurinn isilagður Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni er gert ráðfyrir að skipið muni halda för sinni áfram í kvöld og sigla þá út Eyjafjörðinn. Fréttaritari mbl.is á Akureyri tók þessar myndir af skipinu stuttu fyrir hádegi í dag. Skrifað af Þorgeir 24.12.2021 00:04JólakveðjaMinar allra bestu jóla og nýárskveðjur til allra þeirra sem að hafa heimsótt siðuna og sent mér myndir til birtingar sem að er mjög ánæjulegt og þá verður hún mjög lifandi og skemmtileg aflestrar Góðar stundir kv þorgeir Baldursson
Skrifað af Þorgeir 23.12.2021 23:07Nýsmíði frá Skipasmíðastöð Njarðvíkur eftir 30 ára hlé |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
| 2842 óli Á stað Gk 99 mynd þorgeir Baldursson 2017 |

Polar Ammasak bar nafnið Beitir á árunum 2013-2015. Hér er hann við að leggjast að bryggju Hampiðjunnar í Neskaupstað. Mynd/Jón Einar Marteinsson
Grænlenska skipið Polar Ammasak kom til Neskaupstaðar í fyrrinótt til að taka veiðarfæri hjá Hampiðjunni en það mun halda til loðnuveiða á morgun. Grænlenska félagið Polar Pelagic festi nýverið kaup á skipinu en fyrir gerir það út uppsjávarskipið Polar Amaroq.
Frá þessu segir á heimasíðu Síldarvinnslunnar sem á 33% eignarhlut í Polar Pelagic. Skipið var keypt af danska útgerðarfélaginu Gitte Henning A/S og bar nafnið Gitte Henning.
Í fréttinni segir að Polar Ammasak sé gamall kunningi því skipið var í eigu Polar Pelagic og bar nafnið Polar Amaroq á árinu 2013. Í lok þess árs festi Síldarvinnslan síðan kaup á því og fékk það þá nafnið Beitir.
Skipið var í eigu Síldarvinnslunnar fram á árið 2015 en þá gekk það upp í kaupin á núverandi Beiti sem keyptur var af danska útgerðarfélaginu Gitte Henning og hafði einmitt borið það nafn. Þegar danska útgerðarfélagið hafði tekið við skipinu í skiptum fékk það nafnið Gitte Henning.
Polar Ammasak bar nafnið Beitir á árunum 2013-2015. Ljósm. Hákon Ernuson
Polar Ammasak var smíðað árið 1997 og er 2.148 brúttótonn að stærð. Skipið er búið tveimur aðalvélum og er hvor þeirra 3.260 hestöfl. Burðargetan er 2.200 tonn. Skipið hefur verið mikið endurnýjað á síðustu árum. Skipstjóri á Polar Ammasat verður Geir Zoëga. Geir segist vera afar ánægður með þessi skipakaup og spenntur fyrir komandi loðnuvertíð.
Polar Amaroq kemur til Neskaupstaðar í nótt og er ráðgert að bæði skipin veiði loðnu um hátíðirnar, segir í fréttinni.
![]() |
| 2862 Beitir Nk 123 mynd þorgeir Baldursson 2015 |
![]() |
|
2265 Arnar Hu 1 mynd þorgeir Baldursson 2021 Frystitogari FISK Seafood, Arnar HU-1, er nú skammt frá Sauðárkróki en þangað stefnir hann með 646 tonna afla, þar af um 194 tonnum af ufsa og 175 tonnum af þorski. Fram kemur á vef útgerðarinnar að verðmæti aflans er talið vera um 295 milljónir króna. „Við vorum 24 daga á veiðum og við vorum frá Víkurál að Skagagrunni. Veiðarnar hafa gengið nokkuð vel og við löndum um 18.400 kössum. Veðrið hefur verið gott miðað við að það er desember,“ er haft eftir Guðjóni Guðjónssyni skipstjóra. |
Það var góð og notalega stemming i Húnakaffinu i morgun og við fengum góðan gest Pétur Sigurgeir Sigurðsson
Sölustjóri hjá Skeljungi kom i kaffi og við buðum honum uppá kaffi og Rúgbrauð ásamt hátiðarsild frá Neskaupstað
og luku menn miklu lofi á þetta framtak og fóru allir saddir og ánægðir frá borði þennan morguninn
![]() |
||||||||||
|
Pétur ,Tryggvi,Baldur, Þórður, Pétur, Steini Pé,og Gunni Gisla Mynd þorgeir Baldursson 22des 2021
|
![]() |
| Lerkur FD1206 og Rókur FD 1205 mynd þorgeir Baldurssonn 21 des 2021 |
I morgun kom Frystitogarinn Sólberg ÓF1 i eigu Ramma Á siglufirði i oliutöku i krossanes við Akureyri og var afli
Togarans um 30000 kassar ásamt 60 tonnum af mjöli og 35 tonn af lýsi Áhöfn Trausta Kristinssonar fer nú i jólafrii
og næst tekur Sigþór Kjartansson og hans gengi við keflinu þann 2 janúar 2022
![]() |
||||
|
2917 Sólberg ÓF 1 Mynd Þorgeir Baldursson 21 des 2021
|
![]() |
||||
|
6761 Sunna mynd þorgeir Baldursson
|
![]() |
||
|
Cuxhaven NC 100 Mynd þorgeir Baldursson
|
Eldra efni
Um mig
Nafn:
Þorgeir BaldurssonFarsími:
8620479Tölvupóstfang:
thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang:
Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning:
HörgárbyggðUm:
Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is