04.11.2020 17:34Tveir stubbar mætast
Skrifað af Þorgeir 04.11.2020 13:04Bergey Ve 144
Ísfisktogarinn Bergey VE kom til Neskaupstaðar til löndunar á mánudag. Afli skipsins var um 63 tonn og var hann blandaður; þorskur, ýsa, ufsi og karfi. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Jón Valgeirsson skipstjóra og spurði fyrst út í tíðarfarið. „Það er hægt að segja að tíðarfarið hafi verið rysjótt í veiðiferðinni og stundum reyndar skítabræla. Við létum þó veðrið aldrei stoppa okkur og það var veitt allan tímann. Við lönduðum á Djúpavogi 28. október og fórum þaðan suður í Skeiðarárdýpi þar sem við tókum ufsa og karfa. Síðan var haldið austur á Skrúðsgrunn þar sem fékkst ýsa og loks í Litladýpi þar sem veiddist þorskur. Þrátt fyrir veðrið má segja að veiðiferðin hafi gengið þokkalega. Við reiknum ekki með að halda til veiða á ný fyrr en á fimmtudag eða föstudag,“ segir Jón Skrifað af Þorgeir 03.11.2020 14:58Harðbakur EA 3
Skrifað af Þorgeir 01.11.2020 18:43Þinganes SF 25 á toginu á Austfjarðamiðum i dag
Skrifað af Þorgeir 31.10.2020 21:28Jóhanna EA 31
Skrifað af Þorgeir 31.10.2020 03:49Baldvin Njálsson Gk 400
Skrifað af Þorgeir 30.10.2020 18:19Fiskeldisbáturinn Eir
Skrifað af Þorgeir 30.10.2020 05:50Ósk EA 17
Skrifað af Þorgeir 29.10.2020 13:48Drangi ÁR 307 lyft á stöðvarfirði i morgunÞetta var erfitt og krefjandi starf á lyfta bátnum á flot i morgun sagði Sigurður Stefánsson Kafari og eigandi köfunnarþjónustunnar starfsmenn hans birjuðu um kl 5 i morgun að lyfta honum hérna sjáið þið afraksturinn
Skrifað af Þorgeir 29.10.2020 00:37Reynt að lyfta Drangi Ár í dag
Skrifað af Þorgeir 27.10.2020 18:12Smábátar á Stöðvarfirði
Skrifað af Þorgeir 27.10.2020 14:50Seyðfirðingar á toginu á heimaslóðinni
Skrifað af Þorgeir 26.10.2020 20:12Drangur ÁR 307 Sökk við bryggju á Stöðvarfirði
Framkvæmdastjóri Aurora Seafood segir að mikil fjárfesting liggi í bátnum Drangi ÁR-307. sem sökk í höfninni á Stöðvarfirði. Á þessu ári hafi miklu verið varið í bátinn til að gera hann færan til sæbjúgnaveiða. Þetta sé mikið högg fyrir fyrirtækið og komi ofan í erfiða markaði á heimsfaraldurstímum. „Skipið er nýlega komið úr slipp. Það er búið að setja óhemju fjármuni í að gera það hæft til sæbjúgnaveiða á þessu ári og því síðasta þegar við keyptum það. Það gerir þetta ennþá gremjulegra og erfiðara fyrir okkur. En við getum ekkert gert nema að horfa fram á veginn og koma öðru skipi á veiðar,“ segir Davíð Freyr Jónsson, framkvæmdastjóri Aurora Seafood. „Vertíðin er rúmlega hálfnuð og það er alveg ljóst að það er rosalega vont að missa atvinnutæki sem er í rekstri. Tala nú ekki um þegar markaðurinn er erfiður fyrir sjávarafurðir almennt,“ segir Davíð Freyr. Aflinn til matargerðar í KínaHann segir að til þessa hafi gengið vel að selja sæbjúgun og hefur nær allur aflinn farið til Kína þar sem sæbjúgun er notuð til matargerðar. Undanfarin ár hefur fyrirtækið flutt út 5-6.000 tonn. Á þessu ári er kvótinn hins vegar um 2.000 tonn þar sem leyfilegur heildarafli hefur minnkað. Níu skip hafa heimild til sæbjúgnaveiða á Íslandi. Drangur var sjósettur árið 1984 en að sögn Davíðs hefur mikið verið lagt í bátinn til að gera hann hæfan til sæbjúgnaveiða. „Það eru tugir milljóna sem hafa farið í skipið bara á þessu ári,“ segir Davíð.
Skipið ónýttHann segir að fyrirtækið eigi annað skip en notkun þess var hætt 1. október þar sem heildaraflinn var mun minni en hann hefur verið. Næstu dagar muni hins vegar fara í það að hugsa um að koma Drangi úr höfninni. Hann segir ljóst að Drangur sé nær ónýtur. „Þetta eru gamlir togarar og verðmætin í svona skipum eru ekki mikil. Að endursmíða svona skip kostar rosalega mikið. Svona skip kosta einhverja tugi milljóna. Tryggingarfjárhæð á svona skipum er yfirleitt ekki svo há að það dekki alla þá fjárfestingu sem er í bátnum,“ segir Davíð Freyr. Áhöfnin í skýrslutökuÁhöfnin mun fara í skýrslutöku hjá Rannsóknarnefnd sjóslysa. Að sögn Davíðs var samið við hafnarvörð um að fylgjast með því og nú verði farið í gegnum það hvernig menn skildu við skipið. Ekki er kominn tímarammi á það hvenær skipið verði dregið upp en málið er úr höndum fyrirtækisins þar til af því verður. Köfunnarþjónusta Sigurðar Stefánssonar hefur verið fengin til að ná bátnum á flot en ekki er vitað á þessari stundu hvenar það muni verða
Skrifað af Þorgeir 25.10.2020 11:42Júlíus Geimundsson Is 270
Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 445 Gestir í dag: 37 Flettingar í gær: 1455 Gestir í gær: 74 Samtals flettingar: 991866 Samtals gestir: 48544 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 08:40:30 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is