12.11.2020 21:37

Ljósafell su 70

                                  1277 Ljósafell SU 70 við Bryggju á Fáskrúðsfirði mynd þorgeir Baldursson

11.11.2020 20:32

Fin Veiði á Halanum

                                                1833 Málmey Sk 1mynd þiðrik Unason  2020 

 

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 160 tonn og uppistaða aflans var þorskur.

Heimasíðan hafði samband við Hermann Einarsson skipstjóra og spurði út í túrinn.

„Við vorum fjóra sólarhringa á veiðum, fyrst í kantinum vestan við Halann, svo í Þverál og enduðum á Halanum.

Það var léleg veiði fyrsta einn og hálfan sólarhringinn en fín veiði eftir það. Það var bræla fyrsta daginn en síðan ágætis veður,“ sagði Hermann.

11.11.2020 10:57

Sandfell komið i 500 milljónir

                                                 2841 Sandfell SU 75 mynd þorgeir Baldursson 
 

Það er dýrmætt þegar lífið getur gengið sinn vanagang. Ef síðustu misseri hafa kennt okkur eitthvað þá er það einmitt það.

Á Sandfellinu sækja menn sjóinn rétt eins og þeir hafa gert til margra ára og það hefur gengið vel.

2000 tonn af afla kominn á land að verðmæti 500 milljóna króna!

Hefð hefur skapast hjá Loðnuvinnslunni að færa áhöfnum, og öðrum starfsmönnum, köku til að fagna áföngum sem þessum.

Áhöfnin á Sandfelli fékk sína köku. Rafn Arnarson skipstjóri á Sandfelli var að vonum sáttur og glaður með viðurkenninguna og kökuna.

“Ég var bara einn um borð þegar kakan kom, strákarnir voru að sinna verkefnum annars staðar

og ég þurfti að taka mig á að geyma kökuna þangað til þeir komu til baka” sagði þessi glaðlegi skipstjóri og bætti því við að kakan hefði verið afar góð.

En hverju skal þakka gæfuna og gengið? “Það eru margir samhangandi þættir” svaraði Rafn, “margir túrar, frábær beita, góðar áhafnir, svo eitthvað sé nefnt” bætti hann við.

Á Sandfelli eru tvær fjögurra manna áhafnir sem vinna tvær vikur í senn.

Þegar greinarhöfundur spjallaði við Rafn var Sandfell í landi á Neskaupsstað til að sinna viðhaldi á ískrapavél, stefnt á að fara til veiða þegar því yrði lokið. 

Rafn gerði ráð fyrir því að þeir myndu leggja utan við Norðfjörð en sagði að væntanlega styttist í að þeir flyttu sig svolítið suður á bóginn. Fiskurinn stjórnar för.

10.11.2020 21:02

Drangur Ár 307 orsökin að hann Sökk

Sæmkvæmd áræðanlegum heimildum siðunnar var orsökin þess að báturninn að gleymst hafi að skrúfa fyrir

Botnloka og þegar fór að leka inn lagðist hann á Stjónborðsiðuna þar sem að Slóglúga var opinn sem að siðan 

var þess valdandi að togarinn sökk á skömmum tima um nótttina 

                        Drangur Ár 307 við Bryggju á Stöðvarfirði mynd þorgeir Baldursson

                               1686 Drangur Ár i höfninni á Stöðvarfirði   Mynd þorgeir Baldursson

              Öflugir Kranar af Austurlandi voru fengnir til að lifta undir  bátinn meðan dælt var úr honum 
 

10.11.2020 13:15

Hvalaskoðunnarbátar á Akureyri

                                                                                     Hvalaskoðunnarbátar i fiskihöfninni á Akureyri engir farþegar mynd þorgeir Baldursson  8 nóvember 2020

09.11.2020 23:17

Anna OG Margret i fiskihöfninni

            Anna  EA 305 og 2903 Margret EA 710 mynd Þorgeir Baldursson 8 Nóvember 2020

08.11.2020 11:37

Áskell EA 48 landar á Akureyri

I nótt kom Áskell EA 48 til hafnar á Akureyri til löndunnar  og er það i fyrsta skipti sem að hann landar hér 

aflinn var  um  80 tonn eða i kerjunum eins og Reynir Gestsson  skipstjóri tjáði mér i morgun aflinn fer að hluta til 

i frystihús Gjögurs á Grenivik og restin á Markað skipið mun stoppa i 2 daga sem að er góð hvild fyrir áhöfnina 

þar sem að tiðarfarið hefur verið erfitt veðurfarslega séð siðustu vikur 

                   2958 Áskell EA 48  Við Bryggju á Akureyri i morgun mynd Þorgeir Baldursson 8 nóvember 

          2962 Vörður ÞH 44 og 2958 Áskell ÞH 48 mætast á Austfjarðamiðum i siðustu viku mynd þorgeir Baldursson 

07.11.2020 23:48

Baldvin Þorsteinsson EA 10

                        2212 Baldvin Þorsteinsson EA10 mynd þorgeir Baldursson 

07.11.2020 10:04

Akureyrin EA 110

                     1351 Akureyrin EA110 á siglingu á Eyjafirði  20/11/2005  Mynd þorgeir Baldursson 

                        1351 Snæfell EA 310  heldur til veiða 24/6 2013 mynd þorgeir Baldursson 

                                 1351  Snæfell EA310 á landleið með fullfermi mynd þorgeir Baldursson 
 

07.11.2020 01:34

Eyrún ÞH 2 á strandveiðum á skjálfanda

              7449 Eyrún  ÞH 2 Gunnar Gunnarsson skipst við rúllurnar mynd þorgeir Baldursson 2-8 2012

07.11.2020 01:29

Breki Ve 61

 

                                 2861 Breki Ve 61 i kaldafýlu á austfjarðamiðum  mynd þorgeir Baldursson 

06.11.2020 21:45

Samningur við Færeyjar um fiskveiðimál

                                                 2900 Beitir Nk 123 mynd þorgeir Baldursson 2020

Endurnýjaður samningur þýðir t.d. gagnkvæman aðgang til veiða á kolmunna og norsk-íslenskri síld með sama hætti og verið hefur undanfarin 2 ár.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðaráðherra og Jacob Vestergaard sjávarútvegsráðherra Færeyja, náðu fyrr í vikunni samkomulagi um fiskveiðiheimildir Færeyinga innan íslenskrar lögsögu fyrir næsta ár og um gagnkvæman aðgang að veiðum í lögsögu landanna fyrir norsk-íslenska síld og kolmunna.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu þar sem ennfremur segir:

Heimildir Færeyinga til veiða á botnfiski verða þær sömu og í ár eða 5,600 tonn og hámark þess sem veiða má af þorski verður óbreytt eða 2,400 tonn.  Vegna bágs ástands keilustofnsins voru ráðherrarnir sammála um að keiluafli Færeyinga yrði minni en verið hefur.  Heimildir þeirra til veiða á keilu lækka því úr 650 tonnum í 400 tonn.

Samið var um að Færeyingar geti veitt loðnu við Ísland sem nemur 5% af ákvörðuðum heildarafla á vertíðinni 2020/21 en þó að hámarki 30,000 tonn. Áfram gilda sömu takmarkanir og verið hafa á heimildum þeirra til að verka loðnu um borð eða landa í Færeyjum til manneldis.

Samkomulagið felur í sér gagnkvæman aðgang til veiða á kolmunna og norsk-íslenskri síld með sama hætti og verið hefur undanfarin 2 ár.  Þannig geta allt að 15 íslensk skip stundað síld- og kolmunnaveiðar í lögsögu Færeyja samtímis. Þá er íslenskum skipum heimilt að veiða allt að 1,300 tonn af makríl af aflaheimildum Færeyja sem meðafla við veiðarnar.

Samningurinn er mikilvægur fyrir báðar þjóðirnar. Aðgengi að lögsögu Færeyja til kolmunnaveiða er mikilvægt fyrir íslensk skip þar sem lítið hefur verið af kolmunna í lögsögu Íslands á undanförnum árum.  Fyrir Færeyjar er samningurinn einnig mjög mikilvægur, bæði vegna þeirra veiðiheimilda sem þeir fá í bolfiski og loðnu við Ísland en einnig vegna aukinna veiða þeirra á norsk-íslensku síldinni í íslenskri lögsögu á undanförnum árum.

06.11.2020 10:42

Veiðar og varðveisla á lifandi fiski

Veiðar og varðveisla á lifandi fiski

                                      Tölvumynd af skipinu eftir breytingar mynd af heimasiðu Samherja 

                                                         CHIEFTAIN 1 So- 537   I Skagen  mynd Samherji.is

Samherji hefur fest kaup á uppsjávarskipi og stendur til að breyta skipinu fyrir bolfiskveiðar þar sem sú nýjung bætist við að hægt verður að dæla fiski um borð og geyma lifandi í sér útbúnum tönkum.  Þetta fyrirkomulag býður upp á mun meiri sveigjanleika í meðferð aflans og betri stýringu vinnuálags um borð og í landi.  Um borð býður þessi aðferð upp á:

  • Fiskur fer í sér útbúna tanka þar sem honum er haldið lifandi. Þá er hægt að vinna hann síðar um borð eða koma með fiskinn lifandi að landi.
  • Fiskur er blóðgaður/slægður og settur í tanka með kældum sjó (RSW) til geymslu.
  • Fiskur er blóðgaður/slægður í hefðbundin kör sem geymd eru í kældri fiskilest.

Aðferðin felst í því að fiskur er veiddur í hefðbundna botnvörpu en í staðin fyrir að taka poka inn á dekk og sturta úr honum sem veldur miklu álagi á fiskinn, þá er pokinn tekinn á síðuna og aflanum dælt um borð með sogdælu kerfi (vacuum). Þetta fer mun betur með aflann og er þessi aðferð vel þekkt úr laxeldis iðnaðinum við tilfærslu á lifandi fiski.

Londun_a_lifandi_fiski

Norðmenn hafa stundað þessar veiðar í töluverðum mæli síðustu ár og byggt upp regluverk í kringum þær. Þar er miðað við að sé fiski haldið lifandi skemur en 12 vikur þurfi ekki að meðhöndla hann sem eldisfisk, því ekki sé um eiginlegt fiskeldi að ræða heldur eingöngu geymsluform. Reglurnar snúast bæði um dýravelferð, þ.e. að fiskurinn verði ekki fyrir óþarfa hnjaski og að aðstaða sé um borð til að flokka og vigta allan afla. Sækja þarf um úttekt af hálfu Mattilsynet (Norsku Matvælastofnunarinnar) til að fá leyfi til þess að veiða og varðveita lifandi fisk. Ekki eru gerðar kröfur um íþyngjandi umhverfismat og þar sem ekki er um að ræða aukningu á lífmassa er mjög lítil mengun sem hlýst af því að varðveita fiskinn á þennan hátt. Eftir 4 vikur í kvíum þarf að bjóða fiskinum fóður (heilan fisk t.d. loðnu). Ef vilji er fyrir því að halda fiskinum lengur en 12 vikur er jafnframt hægt að sækja um sérstakt leyfi til að fá að geyma fiskinn í allt að 20 vikur.  Eftir þann tíma gilda hins vegar sömu reglur og gilda um áframeldi á villtum fiski.

Londun_a_lifandi_fiski

Við hjá Samherja erum sannfærð um að mikil tækifæri til framfara felist í þessari aðferð.  Aldur á fiski þegar hann kemur til vinnslu í hefðbundnum landvinnsluhúsum gæti farið úr 3-5 dögum niður í 0-12 klst. Afhendingaröryggi til landvinnslunnar ykist einnig til muna, því með að geyma fiskinn í kvíum væri hægt að jafna út skammtíma sveiflur þegar hráefnisskortur getur orðið vegna veðurs á miðum eða sveiflum í veiðum. Einnig aukast möguleikar á því að sækja inn á nýja markaði með ferskan ófrosinn fisk vegna mun lengri líftíma vörunnar og stöðugra framboði. Við höfum kynnt okkur þessa aðferðafræði í Noregi og hefur starfsfólk Samherja lagt umtalsverða vinnu í að kynna sér ýmis rannsóknarverkefni þessu tengd sem gerð hafa verið þar. 

Londun_a_lifandi_fiski

Þetta fyrirkomulag á veiðum hefur ekki tíðkast hér á landi og regluverkið því ekki til staðar.  Slíkt regluverk snýr meðal annars að vigtun og geymslu lifandi afla.  Okkar sýn er er að í framtíðinni verði skip almennt útbúin þannig að þau geti komið með hluta aflans lifandi að landi. Til þess að sú þróun geti átt sér stað, er nauðsynlegt að reglugerðum verði breytt og þær aðlagaðar þannig að sjávarútveginum verði gert kleift að þróast í þessa átt. 

Nauðsynlegt er að sjávarútvegurinn og stjórnvöld fari í samstarf við að byggja upp regluverk til að halda utan um slíkar veiðar og stuðla þannig að bættri dýravelferð og verðmætaaukningu í bolfiskvinnslu. Samherji mun nýta nýja skipið sem prófstein á þessar veiðar í þeirri trú að hægt verði að eiga gott samtal við stjórnvöld.

Heimasiða Samherja www.samherji.is

 

05.11.2020 23:43

245 ára hákarl án merkja um öldrun

                   Grænlandshákarl um borð i Bretting RE 508 mynd þorgeir Baldursson 

Vísindagrein á áhrifum öldrunar á heila um 245 ára gamals hákarls sýnir stórmerkilegar niðurstöður.

Rannsókn á 245 ára gömlum hákarli leiddi í ljós að heili dýrsins sýndi engin þekkt merki öldrunar. Þetta er talið benda til þess að heili hryggdýra geti haldist lítið eða óbreyttur í mjög langan tíma líkt og sýnt hefur verið fram á í háöldruðum einstaklingum (100 ára eða eldri).

Vísindagrein sem þetta sýnir birtist nýlega en þar var gerð rannsókn á áhrifum öldrunar á heila u.þ.b. 245 ára gamals hákarls í samanburði við sama ferli í heila manna. Hákarl þessi veiddist í haustralli Hafrannsóknastofnunar 2017 djúpt vestur af landinu.

Í frétt Hafrannsóknastofnunar um rannsóknina segir að öldrun hefur ýmis áhrif á frumur í heila manna sem eru vel þekktar. Rannsóknir hafa hinsvegar bent til að hákarl (Somniosus microcephalus ) geti náð óvenjulega háum aldri eða hæstum aldri allra hryggdýra jafnvel allt að 4-500 árum. Því var markmið rannsóknarinnar að athuga hvort að greina mætti svipuð áhrif öldrunar í heila hákarla eins og þekkt eru í heilum manna og rotta.

Niðurstaða rannsóknarinnar var að nánast engin þekkt merki öldrunar eins og hún lýsir sér í heila manna með próteinútfellingum og æðakölkun finndust í heila hákarlsins. Jafnframt sáust engin merki um taugahrörnun. Þetta bendir til að heili hryggdýra geti haldist lítið eða óbreyttur í mjög langan tíma líkt og sýnt hefur verið fram á í háöldruðum einstaklingum (100 ára eða eldri).

Höfundar greinarinnar leiða líkum að því að umhverfi og atferli séu ástæður þess hversu lengi hákarl lifir án sýnilegra áhrifa öldrunar á heila. Hákarl er talinn hægsyndur og heldur að mestu til í stöðugu en köldu umhverfi á tiltölulega miklu dýpi í sjó sem er um 4°C heitur. Þetta veldur því að líklega eru efnaskipti hæg og vísbendingar eru um að blóðþrýstingur hákarls sé mun lægri en hjá öðrum hákarlategundum. Lykillinn að háum aldri virðist því vera að hreyfa sig lítið og halda sig í kulda og myrkri a.m.k. fyrir hákarl.

Klara Jakobsdóttir, sérfræðingur á botnsjávarsviði, er einn af höfundum greinarinnar, sem má nálgast hér.

af vef Fiskifretta 

mynd þorgeir Baldursson 

05.11.2020 21:28

Seldur eftir nær 50 ára þjónustu

                                          Varðskipið Ægir  29 mars 2009 mynd þorgeir Baldursson 

 

„Það er auðvitað eft­ir­sjá að Ægi. Þetta er stór­merki­legt skip og eitt það besta sem ég hef verið á,“ seg­ir Hall­dór B. Nell­ett, skip­herra Land­helg­is­gæsl­unn­ar.

Aug­lýst var um helg­ina að til stæði að selja varðskipið Ægi. Skipið hef­ur ekki verið í notk­un hjá Land­helg­is­gæsl­unni síðustu ár og ligg­ur nú við Skarfa­bakka. Varðskipið Ægir hef­ur þjónað Land­helg­is­gæsl­unni lengi en það var smíðað í Dan­mörku árið 1968. Ægir átti stór­an þátt í 50 og 200 mílna þorska­stríðunum og var meðal ann­ars fyrst ís­lenskra varðskipa til að beita tog­vír­aklipp­um á land­helg­is­brjót.

Hall­dór byrjaði á Ægi 16 ára gam­all árið 1972. Hann seg­ir synd og skömm að Ægir hafi ekki verið gerður meira út og leng­ur. Skipið hafi nýst vel í þorska­stríðunum og bjargað óhemju mörg­um skip­um eft­ir það, að því er fram kem­ur í Morg­un­blaðinu í dag.

„Það er sorg­legt að sjá hvernig var búið að fara fyr­ir þessu góða skipi. Und­an­far­in ár hef­ur mikið verið skorið niður og það er skelfi­legt hvað er lítið út­hald á varðskip­un­um. Þrátt fyr­ir góðæri hafa stjórn­völd ekki viljað spýta í og ég er veru­lega svekkt­ur yfir því. Núna erum við með eitt varðskip á sjó, Þór eða Tý. Það er af­leitt fyr­ir þjóð sem á allt sitt und­ir fisk­veiðum að vera ekki með meiri björg­un­ar­getu en það. Lág­markið er að vera með tvö skip á sjó, við erum með tvö góð skip en þetta snýst um áhafn­ir,“ seg­ir Hall­dór sem tel­ur löngu tíma­bært að huga að nýju varðskipi

Heimild Morgunblaðið 

mynd þorgeir Baldursson 

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 206
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 1272
Gestir í gær: 57
Samtals flettingar: 1573147
Samtals gestir: 60552
Tölur uppfærðar: 14.6.2025 04:15:30
www.mbl.is